Hópar
FSFÍ er nú að reyna að efla hópastarf innan félagsins. Ýmsir hópar starfa nú innan FSFÍ með mismunandi áherslur. Þessir hópar eru settir saman af áhugamönnum, fagfólki og hagsmunaaðilum og aðstoða við stefnumótun félagsins í tilteknum málaflokkum.
- Hópur um frjálsan hugbúnað í atvinnurekstri
- Hópur um frjálsa menningu
- Hópur um gegnsæa stjórnsýslu og opið aðgengi
Hafir þú áhuga á því að taka þátt í hóp, eða stofna nýjan hóp, hafðu þá samband við stjórn FSFÍ, stjorn@fsfi.is.
FSFÍ vill gjarnan að hópar verði til og starfi sjálfstætt undir merkjum félagsins, m.a. sem snúa að opnun skjalasafna, mál- og prentfrelsi, frelsun rafsegulrófsins, persónuvernd, frjálsan vélbúnað, rafræn viðskipti, rafrænar kosningar og margt fleira.
