Höfundalög 2010
Um þessar mundir fer fram vinna við heildarendurskoðun höfundalaga nr. 73/1972 á vegum menntamálaráðuneytisins. Niðurstaða fyrsta áfanga þeirrar vinnu er frumvarp til breytingar á lögunum sem senn verður lagt fram á Alþingi. Gert er ráð fyrir að vinna við endurskoðunina fari fram í nokkrum áföngum og ljúki með heildarfrumvarpi að nýjum höfundalögum sem ráðgert er að verði tilbúið árið 2012.
Eins og fram kemur í athugasemdum með því frumvarpi sem nú liggur fyrir taka þær tillögur sem í frumvarpinu felast m.a. mið af tveimur tilskipunum Evrópusambandsins. Önnur þessara tilskipana, 2001/29/EB um samræmingu tiltekinna þátta höfundaréttar og skyldra réttinda í upplýsingasamfélaginu, hefur verið tekin upp í viðauka við EES-samninginn, og Íslandi því skylt að leiða ákvæði hennar í lög. Hin tilskipunin, 2004/48/EB um fullnustu hugverkaréttinda, hefur hins vegar ekki verið tekin upp í EES-samninginn og er því ekki bindandi hvað Ísland varðar.
Tilskipanir 2001/29/EB og 2004/48/EB hafa báðar verið umdeildar og orðið tilefni mikilla deilna milli þeirra sem vilja efla höfundarétt og auka vernd hans og þeirra sem telja að tilskipanirnar gangi of langt í vernd höfundaréttar á kostnað réttaröryggis og athafnafrelsis einstaklinga. Líkt og sambærileg samtök í öðrum löndum hefur FSFÍ tekið afstöðu gegn þessum tilskipunum og þeim breytingum á höfundarétti sem í þeim felast. Helstar þessara breytinga sem nú eru lagðar til á höfundalögum með því frumvarpi sem fyrir liggur eru eftirtaldar:
- Heimildir dómstóla til að gera eigur þeirra sem dæmdir eru fyrir brot gegn höfundalögum upptækar auknar.
- Heimildir dómstóla til að dæma skaðabætur vegna brota gegn höfundalögum auknar til muna.
- Heimildir til að krefjast lögbanns gegn starfrækslu miðla rýmkaðar m.a. með því að fá hagsmunasamtökum höfundaréttareigenda slíka heimild.
