Félag um stafrænt frelsi á Íslandi » Höfundarréttur

Fiktararnir
Margir hafa aldrei opnað húddið á bíl. Færri hafa opnað tölvukassa. Mjög fáir hafa tekið farsímann sinn í sundur. Svartir kassar eru allsstaðar í umhverfinu okkar, fyrirbæri sem virka án þess að uppljóstra allt of mikið um hvernig þau virka, og vel flestir eru bara sáttir við að þurfa ekki að velta fyrir sér innviðunum. Meðan stjórntækin svara og virknin er í samræmi við væntingar eru flestir ánægðir.

En svo eru hinir. Fiktararnir. Krakkarnir sem rifu brauðristina í sundur, eða örbylgjuofninn. Sem smíðuðu vélmenni úr legókubbum. Fólkið sem fæst ekki til að koma heim í mat, er alltaf úti í bílskúr, eða í tölvuherberginu, eða einhversstaðar að nærast á tækni. Þetta fólk er allsstaðar í kringum okkur. Píparinn, smiðurinn, símvirkinn. Frændi þinn sem kann að gera við tölvur og frænka þín sem kann að gera við bíla. Við þörfnumst þessa fólks.

Án þeirra myndi tæknin okkar ekki virka. Hver myndi slá rafmagninu inn aftur, eða laga sturtuhausinn sem kemur aldrei heitt vatn út úr? Hver myndi fara upp á þak og gera við það, eða halda símstöðvunum gangandi? Hver myndi keyra vélarnar í skipunum og flugvélunum, sjá til þess að posarnir virki, og að ljósastaurarnir kveiki á sér? Líttu í kringum þig. Hvað gæti bilað?

En þrátt fyrir allt þetta fólk sem heldur tækninni okkar gangandi virðumst við taka svörtum kössum án nokkurs fyrirvara. Í gegnum tíðina hafa svörtu kassarnir jú verið opnanlegir, ef eitthvað er að, en nú er það að breytast. Mörg fyrirtæki eru byrjuð að framleiða tækni sem er ekki hægt að taka í sundur, sem er ekki hægt að rýna í og fikta með. Þessi fyrirtæki bera fyrir sér hugverkarétt og skaðabótaábyrgð og allskonar lagaflækjur þrátt fyrir að þær stangist á við mannlegt eðli.

Alveg frá því að maðurinn kom niður úr trjánum í apalíki hefur hann viljað skilja verkfærin sín. Meðan um var að ræða spýtur og steina var það lítið mál. Það var engin skaðabótaábyrgð á spjótum, og enginn hugverkaréttur varði plóginn. Eftir því sem tæknin okkar verður flóknari verður brýnna að til sé fólk sem skilur tæknina út og inn, en lagaumhverfið okkar stendur í vegi fyrir því að fólk geti fiktað, og framleiðendur tækninnar finna stöðugt nýjar leiðir til að koma í veg fyrir að fólk geti tekið hlutina í sundur.

Þegar strákurinn í Ástralíu reyndi að taka iPodinn sinn í sundur og skoða hvernig hann virkaði fann hann engar skrúfur, enga leið til að taka hann í sundur, þannig að hann rak skrúfjárn inn í hliðina á tækið og beint inn í rafhlöðuna, sem sprakk framan í hann. Og lögfræðingar Apple spurðu: Skaðabótaábyrgð hvað?

Og þegar strákurinn í Noregi fann leið til að lesa DVD diska án þess að nota lykil frá vottuðum framleiðanda, og gerði milljónum manna mögulegt að horfa á myndirnar sem þau höfðu keypt á hvaða tölvukerfi sem þau vildu, þá birtust lögfræðingarnir frá DVD CCA og heimtuðu lögbann. Og Jon spurði: Hugverkaréttur hvað?

Þetta er það sem gerist þegar fólk fiktar nú til dags. Það þarf fyrst að brjóta lása, og svo að brjóta lög. Ef það hefur heppnina með sér sleppur það óskaðað frá því með nýja þekkingu á virkni heimsins, en allt of oft núorðið er það bara ekki hægt.

Mannkynið hefur ríkt fiktaraeðli. Við erum öll fiktarar inn við beinið. Og mannlegt eðli er miklu eldra en hagkerfið, miklu eldra en hugverkaréttur. Það er mjög mikilvægt að við stöndum vörð um rétt okkar til að fikta. Rétt okkar til að skilja.

Fjölmennum á RIP!: A Remix Manifesto
Næstkomandi sunnudag, 27. september, verður RIP!: A Remix Manifesto sýnd í síðasta skiptið á Reykjavík International Film Festival (RIFF). FSFÍ hefur áður hvatt meðlimi til þess að mæta á RIP!: A Remix Manifesto og ef þið hafið ekki séð myndina í kvikmyndahúsi nú þegar að þá er síðasta tækifærið á sunnudaginn. FSFÍ hefur frétt það að leikstjóri myndarinnar, Brett Gaylor, muni mæta á sýninguna og sitja fyrir svörum að sýningu lokinni.

Af þeirri ástæðu vill FSFÍ hvetja alla til að fjölmenna á lokasýningu myndarinnar. Fyllum salinn og fögnum boðskapi myndarinnar: Menning okkar þarf á stafrænu frelsi að halda. Nýtum tækifærið til að spyrja Gaylor, sem hefur gefið myndina út undir Creative Commons Attribution Share-Alike Non-Commercial leyfi, spurninga um myndina, um leyfið til að endurblanda myndina og um stafrænt frelsi almennt.

Þið megið einnig endilega kjósa í áhorfendaverðlaunakosningu RIFF og ef RIP!: A Remix Manifesto er að ykkar mati besta mynd hátíðarinnar þá auðvitað kjósið þið hana.

Síðasta sýning RIP!: A Remix Manifesto verður í Háskólabíói, sunnudaginn 27. september kl. 18:00.

ATH: Leiðréttur sýningartími

RIP!: A Remix Manifesto á RIFF
Reykjavík International Film Festival (RIFF) sýnir myndina RIP: A Remix Manifesto (eða eins og titill myndarinnar er þýddur: ‘Stolið: Manifestó rímixarans’) eftir Brett Gaylor. Myndin lofsamar það listræna og stafræna frelsi sem FSFÍ berst fyrir með umfjöllun um Girl Talk, tónlistarmanns sem nýtir sér Fair Use ákvæðin í bandarískum höfundarréttarlögum. Í dagskrárbæklingi RIFF hefst lýsing myndarinnar á:

“Hvað myndirðu gera ef uppáhaldslistamaðurinn þinn væri glæpamaður og list hans glæpurinn? Ef þú ert internet-aktívisti á borð við Brett Gaylor gerirðu bíómynd sem er ólögleg af nákvæmlega sömu ástæðum.”

Í myndinni eru einnig tekin viðtöl við Lawrence Lessig, Cory Doctorow, Gilberto Gil (fyrrverandi menningarmálaráðherra Brasilíu) og Jammie Thomas (kona sem tapaði dómsmáli gegn RIAA). Myndin hefur fengið mjög góða dóma og vann meðal annars áhorfendaverðlaunin á International Documentary Film Festival í Amsterdam í fyrra.

Myndin verður sýnd á morgun, föstudaginn 18. september klukkan 22:40 í Háskólabíói, í Iðnó 22. september klukkan 20:00 og aftur í Háskólabíói 27. september klukkan 18:00. FSFÍ hvetur meðlimi eindregið til þess að fjölmenna á sýningarnar. Dragið vini og vandamenn með í bíó og kíkið á þessa stórgóðu mynd sem er nátengd baráttumálum okkar á Íslandi.

Í anda myndarinnar er hægt að endurblanda hana á: opensourcecinema.org

Opinber síða myndarinnar er: http://www.ripremix.com en myndina er ekki hægt að sækja innan Íslands.

Við mælum einnig með því að þið kynnið ykkur tónlistarmanninn  Girl Talk (Gregg Gillis) sem var innblásturinn á bak við að kvikmyndina. Þið getið nálgast plötuna hans “Feed The Animals”, sem er gefin út undir Creative Commons Attribution NonCommercial hjá útgáfufyrirtækinu Illegal Arts (í veldu-verðið-sjálf(ur) útgáfu):

http://illegal-art.net/illegal-art.net/__girl__talk___feed__the__anima.ls___/