Félag um stafrænt frelsi á Íslandi » Fjáröflun

Vilt þú hjálpa til við ráðstefnu FSFÍ 1. desember næstkomandi?
Kæru meðlimir!

Nú nálgast óðfluga ráðstefna FSFÍ fyrir árið 2009. Stjórnin hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur við að setja saman öfluga dagskrá sem á upp á pallborðið hjá Íslendingum öllum við þær erfiðu aðstæður sem við stríðum nú við.

Aðalfyrirlesarar, eins og kemur fram á vefsíðu FSFÍ verða þeir Eric F. Saltzman, einn stofnenda Creative Commons, og Daniel Schmitt, talsmaður WikiLeaks.

Okkur vantar fólk sem hefur tíma og áhuga á að taka þátt í að gera atburðinn að veruleika!

Ef þú hefur einhvern af eftirfarandi hæfileikum:

Myndvinnsla (klippingar og upptökur)

Þýðingar (t.d. kynningarefni úr ensku)

Hönnun

Orðfærni (skrifa kynningarefni)

Fjáröflun (útvega styrki og stuðning)

Óbilandi áhuga

Endilega verið í sambandi við stjorn@fsfi.is

Einnig viljum við vekja athygli á því að við hvikum ekki frá því að ráðstefnur félagsins séu lausar við aðgangseyri og öllum opnar, en þó fylgir svona atburðum alltaf viss kostnaður og FSFÍ er rekið á sjálfboðavinnu og því ávallt frekar félítið.  Við viljum því biðja alla sem eiga kannski frekar fé en tíma aflögu, að íhuga að leggja okkur lið með beinu framlagi.

Reikningur: 526-26-3638

Kennitala félagsins er: 470308-1170

Allir styrktaraðilar verða nafngreindir, ef þeir óska eftir því á styrktaraðilasíðu FSFÍ.

Með von um jákvæð viðbrögð og sköpunarvilja!

Stjórn Félags um stafrænt frelsi á Íslandi

Styrktaraðilar FSFÍ
FSFÍ er fjármagnað að stærstum hluta með frjálsum framlögum fólks sem er umhugað um stafrænt frelsi. Einstaklingar sem styrkja FSFÍ falla í þrjá flokka eftir upphæðinni sem lögð er inn á bankabók FSFÍ:

Stuðningsmenn frelsis eru styrktaraðilar sem leggja inn allt frá 1 krónu til 4999 króna.

Baráttumenn frelsis eru styrktaraðilar sem leggja inn allt frá 5000 krónum til 14999 króna.

Frelsishetjur eru styrktaraðilar sem leggja inn 15000 krónur eða meira.

Styrktaraðilar FSFÍ birtast á sérstakri styrktaraðilasíðu á vefsvæði FSFÍ. Haldið er utan um styrktaraðilana á ársgrundvelli þannig að hægt er að vera frelsishetja árið 2008 ef fjárhagur leyfir en stuðningsmaður frelsis árið 2009 ef þess gerist þörf. Styrktaraðilar hvers árs eru skráðir í sögubækurnar og listi hvers árs er aðgengilegur á vefsíðu FSFÍ. Það er ekki þörf á því að leggja inn alla upphæðina í einu. Það má til dæmis byrja sem baráttumaður frelsis með því að leggja inn 6000 krónur en svo seinna uppfæra sig í frelsishetju með því að leggja inn 10000 krónur til viðbótar áður en árið er á enda.

Fyrirtæki, stofnanir og félög sem styrkja og styðja við FSFÍ falla undir flokkinn Frelsissveitir. Þeirra stuðningur getur verið bæði fjárhagslegur eða í formi gífurlegrar aðstoðar í hinum ýmsu verkefnum sem félagið tekur sér fyrir hendur.

Vitaskuld mun FSFÍ gæta nafnleyndar þeirra sem óska þess sérstaklega  en í stað þess mun þá Nafnlaus birtast í þessum fjórum flokkum sem hægt er að teljast til. Við hvetjum þó alla til þess að nafngreina sig því FSFÍ er umhugað um að sýna þakklæti sitt til þeirra sem styðja við stafrænt frelsi.

FSFÍ er félag sem starfar með ykkar hagsmuni að leiðarljósi og aðeins með ykkar hjálp er hægt að halda starfsemi og baráttu FSFÍ fyrir stafrænu frelsi á Íslandi gangandi. Við biðjum þig því að íhuga að gerast stuðningsmann frelsis, baráttumann frelsis eða frelsishetju og fyrirtæki að gerast frelsissveitir með því einu að leggja þá upphæð sem þér finnst þægileg inn á bankareikning FSFÍ.

Reikningsnúmer FSFÍ er 526-26-3638 og kennitala félagsins er 470308-1170 eins og sjá má hér til hliðar.

Þakka þér fyrir stuðninginn.

Fjáröflun í fullum gangi
Þann 5. júlí næstkomandi mun FSFÍ standa fyrir ráðstefnu um stafrænt frelsi í Gullteigssal á Grand Hótel Reykjavík. Úrvals fyrirlesarar koma hér saman á þennan einstaka viðburð sem er ætlað að vekja íslendinga til umhugsunar um eðli frelsis á tölvuöld.

Eins og gefur að skilja kostar töluverðar fjárhæðir að skipuleggja þessa ráðstefnu. Í dag er staðan sú að okkur vantar um 460 þúsund krónur upp á til að geta haldið ráðstefnuna, sem kostar í heildina 605 þúsund krónur miðað við kostnaðaráætlun. Við í skipulagsnefnd ráðstefnunnar höfum reynt að vera sæmilega sparsamir, en allt kostar jú sitt.

Kostnaðaráætlun verður birt hér á vefsíðunni innan skams, enda eðlilegt að félag sem hefur frelsi að markmiði sínu sé með opið og aðgengilegt bókhald.

Við ætlum í komandi viku að fara í fjáröflunaraðgerðir, þá fyrst og fremst með því að leita til fyrirtækja um að gerast styrktaraðilar ráðstefnunnar. Styrkir eru vel þegnir frá öllum og við vinnum nú að því að koma upp síðu þar sem taldir verða upp allir sem hafa lagt FSFÍ lið með fjárstuðningi frá árinu 2004, þegar félagið hóf starfsemi sína í óformlegri mynd.

Til hliðar má sjá upplýsingar um bankabók og kennitölu félagsins, viljirðu leggja okkur lið.