Félag um stafrænt frelsi á Íslandi » spm

Fiktararnir
Margir hafa aldrei opnað húddið á bíl. Færri hafa opnað tölvukassa. Mjög fáir hafa tekið farsímann sinn í sundur. Svartir kassar eru allsstaðar í umhverfinu okkar, fyrirbæri sem virka án þess að uppljóstra allt of mikið um hvernig þau virka, og vel flestir eru bara sáttir við að þurfa ekki að velta fyrir sér innviðunum. Meðan stjórntækin svara og virknin er í samræmi við væntingar eru flestir ánægðir.

En svo eru hinir. Fiktararnir. Krakkarnir sem rifu brauðristina í sundur, eða örbylgjuofninn. Sem smíðuðu vélmenni úr legókubbum. Fólkið sem fæst ekki til að koma heim í mat, er alltaf úti í bílskúr, eða í tölvuherberginu, eða einhversstaðar að nærast á tækni. Þetta fólk er allsstaðar í kringum okkur. Píparinn, smiðurinn, símvirkinn. Frændi þinn sem kann að gera við tölvur og frænka þín sem kann að gera við bíla. Við þörfnumst þessa fólks.

Án þeirra myndi tæknin okkar ekki virka. Hver myndi slá rafmagninu inn aftur, eða laga sturtuhausinn sem kemur aldrei heitt vatn út úr? Hver myndi fara upp á þak og gera við það, eða halda símstöðvunum gangandi? Hver myndi keyra vélarnar í skipunum og flugvélunum, sjá til þess að posarnir virki, og að ljósastaurarnir kveiki á sér? Líttu í kringum þig. Hvað gæti bilað?

En þrátt fyrir allt þetta fólk sem heldur tækninni okkar gangandi virðumst við taka svörtum kössum án nokkurs fyrirvara. Í gegnum tíðina hafa svörtu kassarnir jú verið opnanlegir, ef eitthvað er að, en nú er það að breytast. Mörg fyrirtæki eru byrjuð að framleiða tækni sem er ekki hægt að taka í sundur, sem er ekki hægt að rýna í og fikta með. Þessi fyrirtæki bera fyrir sér hugverkarétt og skaðabótaábyrgð og allskonar lagaflækjur þrátt fyrir að þær stangist á við mannlegt eðli.

Alveg frá því að maðurinn kom niður úr trjánum í apalíki hefur hann viljað skilja verkfærin sín. Meðan um var að ræða spýtur og steina var það lítið mál. Það var engin skaðabótaábyrgð á spjótum, og enginn hugverkaréttur varði plóginn. Eftir því sem tæknin okkar verður flóknari verður brýnna að til sé fólk sem skilur tæknina út og inn, en lagaumhverfið okkar stendur í vegi fyrir því að fólk geti fiktað, og framleiðendur tækninnar finna stöðugt nýjar leiðir til að koma í veg fyrir að fólk geti tekið hlutina í sundur.

Þegar strákurinn í Ástralíu reyndi að taka iPodinn sinn í sundur og skoða hvernig hann virkaði fann hann engar skrúfur, enga leið til að taka hann í sundur, þannig að hann rak skrúfjárn inn í hliðina á tækið og beint inn í rafhlöðuna, sem sprakk framan í hann. Og lögfræðingar Apple spurðu: Skaðabótaábyrgð hvað?

Og þegar strákurinn í Noregi fann leið til að lesa DVD diska án þess að nota lykil frá vottuðum framleiðanda, og gerði milljónum manna mögulegt að horfa á myndirnar sem þau höfðu keypt á hvaða tölvukerfi sem þau vildu, þá birtust lögfræðingarnir frá DVD CCA og heimtuðu lögbann. Og Jon spurði: Hugverkaréttur hvað?

Þetta er það sem gerist þegar fólk fiktar nú til dags. Það þarf fyrst að brjóta lása, og svo að brjóta lög. Ef það hefur heppnina með sér sleppur það óskaðað frá því með nýja þekkingu á virkni heimsins, en allt of oft núorðið er það bara ekki hægt.

Mannkynið hefur ríkt fiktaraeðli. Við erum öll fiktarar inn við beinið. Og mannlegt eðli er miklu eldra en hagkerfið, miklu eldra en hugverkaréttur. Það er mjög mikilvægt að við stöndum vörð um rétt okkar til að fikta. Rétt okkar til að skilja.

Gegnsæi grunnkerfanna
Nú þegar peningar eru búnir að glata áþreifanleika sínum, og eru nær eingöngu til sem talnarunur í tölvukerfum bankanna, er vert að spyrja margra spurninga um eðli þeirra kerfa. Hver bjó þau til? Hverjum hlýða þau? Hvers er valdið þegar tölvukerfið er annars vegar? Geta framleiðendur hugbúnaðarins sem tölvurnar keyra staðfest að hvergi séu villur sem geta valdið fjárhagslegu tjóni, ofurverðbólgu eða hruni hagkerfis? Hvernig geta þeir staðfest það?

Á bak við öll tölvuforrit liggur kóði, leiðbeiningar fyrir tölvuna um hvernig hún á að hegða sér. Eina leiðin til að sannreyna gæði tölvukerfis er að skoða kóðann, leita að rökvillum, göllum og brestum. Og þrátt fyrir að starfsmenn þeirra fyrirtækja sem þróa hugbúnað fyrir bankakerfið eru eflaust afar færir í sinni vinnu, þá geta slysin alltaf orðið. Þeir geta lofað okkur að kerfið muni ekki bresta, en slík loforð eru orðin tóm.

Væri kóðinn afturámóti gerður aðgengilegur öllum gætu allir sem vit hafa á slíkum kóða staðfest ágæti hans. Lögmál Linusar segir okkur að þegar nógu mörg augu sjá liggja allar villur grunnt. Reynsla síðasta áratugs hefur sýnt að alvarlegar öryggisholur í frjálsum hugbúnaði finnast hraðar og eru síður misnotaðar en sambærilegar öryggisholur í ófrjálsum hugbúnaði.

Meðan hættunni er á vissan hátt boðið heim með því að birta kóðann að undirstöðum hagkerfisins opinberlega, þannig að óprúttnir aðilar geta nálgast hann og leitað að göllum, þá er það þó staðreynd að ef kóðinn er lokaður eru gallarnir þó enn til staðar – þeir óprúttnu þurfa bara að leita ögn betur.

Tölvukerfi liggja til grundvallar svo mörgum kerfum í dag sem við reiðum okkur á að það er ekki lengur ásættanlegt að menn treysti á hugbúnað sem er ólýðræðislegur í eðli sínu. Tölvurnar sem geyma sjúkraskrárnar okkar, stjórna hagkerfi okkar og telja atkvæðin okkar verða að uppfylla ákveðin skilyrði um öryggi og áreiðanleika, og við sem á það reiðum getum eingöngu staðfest að þau skilyrði séu uppfyllt ef að gangverk hugbúnaðarins er öllum opið til rýnis. Lokuð kerfi bjóða upp á mistök, faldar bakdyr, og ýmiskonar svindl. Mistök má laga. Bakdyrum má loka. Svindl má uppræta. En eingöngu ef við sjáum.

Félag um stafrænt frelsi á Íslandi berst fyrir opnun hugbúnaðar í almannaþágu og hafnar með öllu þeirri hugmynd að svartir kassar fái að stjórna lífi okkar.

Prjónaskapur og stafrænt frelsi
Einu sinni voru það bara örfáir sem kunnu að prjóna, og þeir sem það kunnu vildu halda því þannig. Með því að halda þekkingunni út af fyrir sig gátu þau tryggt sér næga vinnu og góða afkomu við að prjóna úrvalsflíkur á meðan aðrir gengu um í þæfðum feltflíkum úr lélegri ull og handofnu lérefti.

Margir telja að prjónaskapur hafi átt sér stað í þúsundir ára, en raunin er sú að prjónaskapur eins og hann er þekktur í dag varð til á endurreisnartímabilinu, og eldri flíkur, til dæmis frá landnámsöld, voru gerðar með annarri aðferð sem kallast vattarsaumur.

Nútíma prjónaskapur var fundinn upp í miðausturlöndum og barst til Evrópu í gegnum sérstök prjónagildi, þar sem eingöngu karlmenn unnu og prjónuðu allan daginn. Prjónaðar vörur voru eftirsóttar en þar sem fáir kunnu iðnina voru þær dýrar. Lengi vel var eingöngu konungsfólk og lénsherrar sem gátu klæðst prjónuðum flíkum.

En það er ekki flókið að prjóna eins og menn áttuðu sig á þegar þeir fóru að skoða þessar vörur, og fólki tókst að frelsa þessa lokuðu þekkingu og dreifa henni út í samfélagið. Prjónagildin hrundu og prjónaflíkur féllu úr tísku hjá konungsfólkinu en allir gátu nú klæðst hlýjum lopapeysum.

Smám saman urðu til rithættir fyrir prjónauppskriftir, eins konar nótnablöð fyrir listamenn með prjóna. En prjónablöð voru fyrst um sinn efin út fyrst og fremst af framleiðendum garnsins, sem héldu aftur mikilvægum upplýsingum í uppskriftum sínum til þess að lesendur voru að stóru leyti tilneyddir til að kaupa garn frá þeim.

Kona að nafni Elisabeth Zimmerman, sem var fræg fyrir handiðnir sínar, var ráðin af garnframleiðanda til að hanna peysu. Hún útbjó flíkina og nákvæmar leiðbeiningar um framleiðsluferlið – kóðann að peysunni, ef svo mætti að orði komast – og fyrirtækið breytti uppskriftinni á þann veg að ekki væri auðvelt að búa til peysuna með öðru garni en þeirra eigin.

Elisabeth varð svo reið yfir þessu að hún stofnaði sitt eigið útgáfufyrirtæki og gaf út uppskriftir sínar með öllum tiltækum upplýsingum ásamt uppástungum um breytingar þar sem sköpunargleðin fengi að njóta sín. Þekkingin dreifðist.

Hliðstæða við þessa sögu á sér nú stað í tölvukerfum nútímans. Fyrirtæki sem þróa hugbúnað sjá sér hag í því að fela sínar aðferðir fyrir almenningi. Lokaður hugbúnaður felur mikið af þeim möguleikum sem eru til staðar í tölvunum. Rétt eins og garnframleiðendurnir földu mikilvægar upplýsingar til að tryggja sína markaðsstöðu þá hafa

hugbúnaðarframleiðendur komið sér upp lokuð gagnasnið þannig að ekki er hægt að skipta um hugbúnað; að þegar þú hefur einu sinni valið að nota hugbúnað frá tilteknu fyrirtæki þá getir þú ekki skipt nema að glata öllum þeim upplýsingum sem hafa orðið til með notkun þess.

Félag um stafrænt frelsi á Íslandi vill að gagnasnið séu opin, svo að framleiðsluaðferðirnar á ullarpeysum framtíðarinnar séu öllum aðgengilegar.

Staða mála hjá FSFÍ – tilkynning til félagsmanna
Sæl öllsömul!

Við í stjórn FSFÍ viljum byrja á því að þakka fyrir góðan stuðning í baráttunni síðasta árið. Þetta er ungt félag en við höfum náð langt á stuttum tíma, og það er mjög margt á döfinni eins og er.

Starfsemi félagsins var að mestu undir yfirborðinu í haust, en við hófumst aðeins handa við að leggja drög að næstu ráðstefnu félagsins og pældum aðeins út hvað meira mætti gera. Þá héldum við góðu sambandi við erlenda samstarfsaðila: Freyr Gunnar Ólafsson fór í heimsókn til Software Freedom Law Center í New York, Smári McCarthy fór til Gautaborgar á FSCONS ráðstefnuna, sem verður aftur haldin 13-15 Nóvember næstkomandi, sjá http://www.fscons.org/ (fjölmennum!), og Tryggvi Björgvinsson fór á Free Culture ráðstefnuna í San Fransisco.

Í síðasta mánuði veitti þáverandi menntamálaráðherra okkur í FSFÍ sæti í höfundaréttarráði. Þetta er mikil viðurkenning fyrir okkur, og var ákveðið að sitjandi formaður skyldi taka sæti FSFÍ í ráðinu. Höfundaréttarráð starfar á grundvelli reglugerðar 500/2008 um starfsreglur höfundaréttarnefndar og höfundaréttarráðs, en nánar má lesa um það hér: http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/500-2008

Þá er FSFÍ líka komið í tengsl við samgönguráðuneytið í tengslum við tilraunir þeirra með rafrænar kosningar árið 2010.

Og í dag hélt FSFÍ í samvinnu við Íkon halda örnámskeið á vegum Skýrslutæknifélagsins þar sem fjallað var um frjálsan hugbúnað, opna staðla, og fleira.

Nú á næstunni er margt á döfinni:

Við höfum sent inn umsókn um að halda OpenOffice.org ráðstefnuna árið 2009 (og 2010 ef 2009 gengur ekki). Kosningarnar eru núna í gangi, en Ísland er í baráttu við Lettland, Ungverjaland, Ítalíu, Egyptaland, Indland og Filippseyjar. Sjá http://marketing.openoffice.org/ooocon2009/cfl/

Eftir rétt tæpar tvær vikur mun Eben Moglen koma aftur til landsins í þeim erindagjörðum að hjálpa íslenskum stjórnmálaflokkum að móta stefnu um upptöku frjáls hugbúnaðar í ríkisapparatinu. Óformleg könnun FSFÍ bendir til þess að úr ríkissjóði séu greiddar hundraðir milljónir króna árlega fyrir hugbúnað, en hvergi virðist það vera sundurliðað frá öðrum útgjöldum í fjárbókum stofnanna. Því miður verður ekki tími til að skipuleggja formlegan fyrirlestur í tengslum við komu Moglens að þessu sinni, en mögulega verður hægt að bjóða til samsætu félagsmanna; það verður þá nánar auglýst síðar.

Til að bæta enn um betur mun Mathias Klang (http://www.digital-rights.net), verkefnisstjóri Creative Commons í Svíþjóð koma til landsins viku síðar í tengslum við doktorsritgerð Tryggva Björgvinssonar, formanns FSFÍ. Þá mun FSFÍ nýta ferð hans til að bjóða til samdrykkju á einhverju öldurhúsi bæjarins þar sem Matthias mun fara með framsögu og því næst mun fólk geta flutt stutt erindi, og kannski náum við að koma á einhverjum ögn formlegri fyrirlestri í samvinnu við HÍ. Sendið póst á stjorn@fsfi.is ef þið viljið flytja erindi á samdrykkjunni – fyrstir koma, fyrstir fá.

Við erum einnig í upphafsstigum skipulagningar á Nordic Perl ráðstefnunni árið 2010. Það hefur verið áhugi hjá Perlurum að halda það hér og við erum að kanna möguleika á að samþætta það ráðstefnu okkar það árið. Þetta mál er algjörlega á upphafsstigum samt, og mikið verk er framundan.

Tryggvi Björgvinsson hefur verið að vinna í efni um stafrænt frelsi fyrir forsætisráðuneytið sem mun koma út í síðasta lagi um miðjan mars (sem handbók um stafrænt frelsi). Handbókin tekur fyrir stafrænt frelsi en leggur mesta áherslu á frjálsan og opinn hugbúnað og opna staðla. Í handbókinni verður að finna svör við flestum spurningum sem brenna á ríkisstarfsmönnum og landsbúum varðandi þessi umfjöllunarefni. Til dæmis er fjallað um sannmæli og öflun frjáls og opins hugbúnaðar, helstu skráarsniðsstaðlana og frjálsan og opinn hugbúnað, staða frjáls og opins hugbúnaðar og opinna staðla í öðrum löndum, reynslusögur frá Íslandi, drög að samningum við hugbúnaðarframleiðendur og margt fleira. Í allt mun handbókin, sem verður sett á ut.is (vef upplýsingatæknisamfélags

ráðuneytanna), vera samansett úr rúmlega 40 umfjöllunarefnum. Fyrst um sinn verður efnið sett statískt inn á vefinn en það er verið að skoða hvort hægt sé að tengja kvikukerfi (wiki) inn í núverandi kerfi UT vefsins en það verður samt ekki sett upp fyrr en seinna ef það kemst í gagnið. Efnið mun koma út undir frjálsu leyfi að sjálfsögðu.

Svo er undirbúningur að fara í alvöru gír fljótlega fyrir næstu ráðstefnu um stafrænt frelsi á Íslandi. Það er sannarlega mikið til að ræða um, þannig að það er um að gera að gera þetta með glæsibrag. Félagið stendur sæmilega vel fjárhagslega þrátt fyrir hremmingar peningamarkaðarins, og fyrirtæki í landinu hafa sýnt því áhuga að styrkja næstu ráðstefnu. Það sem vantar er sjálfboðaliða: til að gera ráðstefnuna sem veglegasta þarf öflugt teymi til að aðstoða við kynningarmál og annað sem ber á góma. Ef þið hafið áhuga á því að taka þátt, látið okkur vita: stjorn@fsfi.is

Með kærri kveðju frá skotgröfum frelsisstríðsins,

Stjórn FSFÍ

Tryggvi Björgvinsson

Smári McCarthy

Steinn E. Sigurðarson

Hallgrímur H. Gunnarsson

Freyr Gunnar Ólafsson

Hugbúnaður á réttu verði
Kjarninn í bankakrísunni hérlendis er að greiðsluþrot bættist ofan á ofvogun á fjármálamarkaði, sem er mjög algengt vandamál þegar litlar þjóðir taka stór stökk. Það sem úr verður er lausafjárskreppa þar sem ekki eru til nægir gjaldeyrisforðar til að greiða fyrir það sem þarf að greiða fyrir erlendis frá.

Nokkrar leiðir eru til til þess að draga úr gjaldeyrisútstremi, en tvær helstu eru aukning á útflutningi annars vegar og aðhald hinsvegar. Aðhald birtist í nokkrum myndum, en eitt form aðhalds er að minnkra bruðl – það er að segja, hætta að kaupa dýru vöruna í stað sambærilegrar ódýrari vöru.

Það er afar brýnt að Ísland sem heild hætti að borga erlendum fyrirtækjum fyrir það sem hægt er að fá ýmist hérlendis eða frítt.

Frjáls hugbúnaður er skilgreindur sem hugbúnaður þar sem leyfi höfundar er veitt til að nota hugbúnaðinn, læra af honum, deila honum með öðrum, og að bæta hann. Hugbúnaðarþörfum íslensks samfélags má mæta fullkomnlega með frjálsum hugbúnaði, sem kostar ekkert að flytja inn og er hægt að aðlaga alfarið að íslenskum þörfum, með þýðingum, staðfæringum og endurbótum svo fátt eitt sé nefnt.

Nýlega ákvað Microsoft, einn helsti hugbúnaðarframleiðandi heims, að sala á hugbúnaði til Íslands skyldi miðast við að gengið á evrunni væri 120 krónur, en þessi afsláttur er töluverður. Í ljósi þessa göfuga útspils eins ríkasta fyrirtækis heims eru framleiðendur á frjálsum hugbúnaði tilbúnir til að veita öllum íslenskum aðilum, opinberum sem einkaaðilum, fyrirtækjum sem einstaklingum, ókeypis og frjálsan aðgang að sínum vörum til eilífðarnóns, eins og hann hefur gert nú í áratugi.

Í dag eru vörur þær sem framleiddar eru undir formerkjum stafræns frelsis ótrúlega mörg: Linux stýrikerfið, OpenOffice skrifstofupakkinn, Firefox vafrinn, Apache vefþjónninn, MySQL gagnagrunnurinn og svo framvegis. En frjálsi heimurinn framleiðir ekki bara hugbúnað, heldur líka menningarverðmæti svo sem Wikipedia alfræðiritið, sem er stærsta og

ítarlegasta alfræðirit heims.  Kvikmyndir, tónlist, og margt fleira er gefið út undir sambærilegum skilmálum við frjálsan hugbúnað, en undantekningarlaust er þar um að ræða vörur sem kosta ekki neitt.

Forsætisráðuneytið gaf fyrr á árinu út stefnu varðandi frjálsan hugbúnað, sem mætti hafa fengið mun meiri athygli. Það er tími til komið að einhver skoði þessa stefnu rækilega, og jafnvel íhugi hvort að hún sé ekki allt of mild í merkingu sinni. Punktarnir í stefnunni eru fimm:

1. Gæta skal þess að gefa frjálsum hugbúnaði sömu tækifæri og séreignarhugbúnaði þegar tekin er ákvörðun um kaup á nýjum búnaði og ávallt skal leitast við að gera sem hagstæðust kaup.

2. Leitast verði við að velja hugbúnað sem byggist á opnum stöðlum, hvort sem um staðlaðan búnað sé að ræða eða sérsmíðaðan. Opnir staðlar eru yfirleitt ráðandi í frjálsum hugbúnaði.

3. Stefnt verði að því að opinberir aðilar verði ekki of háðir einstökum hugbúnaðarframleiðendum og þjónustuaðilum. Notkun frjáls hugbúnaðar er liður í því.

4. Stefnt skal að því að hugbúnaður sem smíðaður er og fjármagnaður af opinberum aðilum, m.a. í rannsóknar- og þróunarverkefnum, verði endurnýtanlegur. Liður í því er að hugbúnaðurinn sé frjáls. Í upphafi slíkra verkefna skal gera áætlun um endurnýtingu hugbúnaðarins.

5. Stuðlað verði að því að nemendur í menntastofnunum landsins fái tækifæri til að kynnast og nota frjálsan hugbúnað til jafns við séreignarhugbúnað.

Þessi stefna er frábært skref í rétta átt, en þegar stefnan var samin var engin leið að vita að kostnaður vegna hugbúnaðarleyfa átti eftir að margfaldast sökum breytinga á efnahagsástandinu. Jafnvel með góðlátlegu

framtaki Microsoft þá hafa hugbúnaðarútgjöld fyrirtækja og ríkisstofnanna aukist til muna vegna fjármálaóreiðunnar, til dæmis vegna gagnagrunnskerfa, fjársýslukerfa, vefþjóna, póstþjóna, margmiðlunarhugbúnaðar og fleira.

Við verðum því að gera nýja og harðari kröfu. Það er klárt mál að það er ósanngjarnt að fólk greiði fyrir vöru þegar sambærilega eða betri vöru má fá frítt. Enginn sem hefur þekkingu á frjálsum og lokuðum hugbúnaði neitar því að frjáls hugbúnaður er í nær öllum tilfellum betri en séreignarhugbúnaðurinn.

Krafan er því einföld: Vilji framleiðendur séreignarhugbúnaðar halda áfram þátttöku í íslenskum efnahag verða þeir að lækka verðið á sínum vörum niður í núll, ekki bara strax, heldur til frambúðar.

Ástæðan er sú að hugbúnaður er afritaður án jaðarkostnaðar; það kostar ekkert að dreifa hugbúnaði umfram þá föstu upphæð sem kostaði að framleiða hugbúnaðinn í upphafi. Hægt er að ná fram sömu innlendu tekjum af sölu þjónustu við hugbúnað og fást við sölu hugbúnaðarins, og viðskiptalíkön fyrirtækja sem átta sig á þessum mikilvæga greinarmun eru ekki í neinni hættu. Mörg íslensk fyrirtæki hafa áttað sig á þessu, og fyrirtæki eins og CCP gætu í rauninni gert hugbúnaðinn sinn frjálsan án þess að fórna neinu. Þeirra tekjur koma ekki frá sölu hugbúnaðarins – þvert á móti gefa þeir hann frítt – heldur af sölu áskriftar að þjónustunni sem hugbúnaðurinn er; fólk kaupir sig inn í heim þann sem CCP rekur, og þar liggja verðmætin. Ef hugbúnaðurinn væri frjáls eru allar líkur á því að áhugasamir spilarar myndu leggja sitt að mörkum við að bæta hugbúnaðinn, sem yrði til bóta bæði fyrir fyrirtækið og spilaranna.

Erlendis hafa mörg fyrirtæki áttað sig á þessu líka. Sun Microsystems hefur á undanförnum árum frelsað sinn hugbúnað og gefið hann frítt, vitandi það að þeirra helstu tekjulindir eru af sölu á þjónustu annars vegar og vélbúnaði hinsvegar.

Það er mikilvægt fyrir íslensku þjóðina að fyrirtæki sem framleiða hugbúnað hætti að selja vörur sem kostar þá ekkert að afrita. Geri þeir það ekki, þá túlkast það sem árás á sjálfstæði þjóðarinnar nú á krepputímum. Þeirra vörur eru ekki af því taginu að tekið verður af þeim: þegar hægt er að afrita eitthvað óendanlega oft án þess að kostnaður hljótist af er hreinlega ósiðlegt að útiloka einhvern, hvað þá rukka leigu af því.

Fyrstu mótmælin sem framleiðendur og seljendur séreignarhugbúnaðar munu leggja fram við þessu er að rekstrarkostnaður á frjálsum hugbúnaði sé meiri en af séreignarhugbúnaði. Við þessu á ég til tvö svör.

Fyrsta svarið er að þetta er haugalygi. Í dag borgar Íslenska ríkið tugi, ef ekki hundruði milljóna króna árlega til Microsoft í leigu eða afnotagjöld af stýrikerfinu þeirra einu og sér, og ofan á það bætast margar tugir milljóna til viðbótar vegna skrifstofupakkans þeirra. Skólar og stofnanir greiða þá jafnframt fyrir sérfræðihugbúnað þó svo að yfirleitt sé til hliðstæður frjáls hugbúnaður.

Annað svarið er að mikill meirihluti af þeim peningum sem fara í að greiða fyrir reksturinn af séreignarhugbúnaði fer rakleiðis úr landi, en með frjálsan hugbúnað er hægt að halda öllu fjármagninu innan íslenska hagkerfisins og eiga afgang. Öllum tölvukerfum fylgir töluverð umsýsla, hvort sem framleiðandinn sé fyrirtæki eða sjálfboðaliðar. Með því að nota frjálsan hugbúnað geta kerfisstjórar séð um alla umsýslu án þess að neinn hluti kostnaðarins sé greiddur til erlendra aðila.

Þetta er því tillagan: Hættum að greiða fyrir hugbúnað.

Yrði Ísland fyrsta landið til að stíga þetta skref? Þvert á móti. Brasilía fór þessa leið fyrir nokkrum árum, sem og Kína. Stór hluti stjórnsýslu Californíu er keyrður á frjálsum hugbúnaði, og fjölmörg önnur ríki og sveitarfélög hafa hætt að greiða fyrir sinn hugbúnað. Á norðurlöndum hefur Skolelinux verkefnið unnið til fjölmargra verðlauna fyrir sín jákvæðu áhrif innan menntastofnanna. Smám saman er fólk allsstaðar í heiminum að uppgötva kosti þess að nýta sér afrakstur

samvinnu sjálfboðaliða um allan heim.

Í ofanálag við leyfisgjöldin hefur íslenska ríkið kostað þýðingu á Microsoft Windows, verkefni sem kostaði tugir milljóna. Ubuntu Linux dreifingin er nú 21% þýdd á íslensku, en þá er um að ræða þýðingu á öllum þeim þúsundum forrita sem fylgja kerfinu. Megnið af grunnkerfinu hefur þá verið þýtt, og þýðingarvinnan gengur mjög vel sem

samvinnuverkefni fjölmargra einstaklinga.

Sömuleiðis greiðir menntamálaráðuneytið fyrir aðgang allra íslendinga að vefútgáfu Encyclopedia Britannica, en á sama tíma er frjálsa samvinnuverkefnið Wikipedia mun oftar heimsótt af íslendingum, og það kostar engan neitt að fá aðgang að því. Íslenskun Wikipedia gengur einnig rosalega vel, en í íslensku útgáfunni eru nú rúmlega 24000 greinar.

Annað sem er hugsanlega mikilvægara til lengri tíma litið er að leggja til að íslensk fyrirtæki sem fara í gjaldþrot af hverskyns ástæðum frelsi allan þann hugbúnað sem þeir hafa skrifað ef nokkur er, þannig að kóðinn glatist ekki vegna gjaldþrotsins og megi hugsanlega endurnýtast annarsstaðar í samfélaginu. Það er líklegt að íslenskt samfélag hafi

orðið af hundruðum milljóna króna vegna hugbúnaðar sem hefur verið þróaður fyrir áhættufé og horfið svo inn í eilífðina vegna þess eins að fjármagn vantaði.

Ræða Eben Moglen af ráðstefnu um stafrænt frelsi 2008
Ræða Eben Moglens af ráðstefnu FSFÍ síðasta sumar er loksins orðin aðgengileg á netinu.

<embed id="VideoPlayback" src="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=-4672751133443165518&hl=en&fs=true" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true" allowScriptAccess="always" type="application/x-shockwave-flash"> </embed>

Útvarp Saga: Viðtal við Hallgrím H. Gunnarsson og Vinay Gupta
Þann 3. júlí var tekið viðtal við tvo fulltrúa FSFÍ, Hallgrím og Vinay, á Útvarpi Sögu. FSFÍ þakkar Útvarpi Sögu leyfið til endurbirtingar viðtalsins.

Ráðstefnan búin
FSFÍ vill þakka öllum þeim sem mættu á ráðstefnuna í gær og gerðu hana jafn frábæra og hún var.

Eben Moglen og John Perry Barlow á ráðstefnunni. Mynd: Ævar Arnfjörð Bjarmason. CC-SA. Flickr set.

Á næstu vikum munum við vinna úr upptökunum og koma þeim upp á netið. Hér eru komin nokkur sýnishorn:

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="id" value="VideoPlayback" /><param name="src" value="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=765707312771307710&hl=en&fs=true" /><embed id="VideoPlayback" type="application/x-shockwave-flash" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true"  src="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=765707312771307710&hl=en&fs=true"></embed></object>

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true"  codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="id" value="VideoPlayback" /><param name="src" value="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=985265106717714310&hl=en&fs=true" /><embed id="VideoPlayback" type="application/x-shockwave-flash" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true" src="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=985265106717714310&hl=en&fs=true"></embed></object>

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="id" value="VideoPlayback" /><param name="src" value="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=2469971933076715801&hl=en&fs=true" /><embed id="VideoPlayback" type="application/x-shockwave-flash" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true" src="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=2469971933076715801&hl=en&fs=true"></embed></object>

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="id" value="VideoPlayback" /><param name="src" value="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=449973883354290506&hl=en&fs=true" /><embed id="VideoPlayback" type="application/x-shockwave-flash" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true" src="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=449973883354290506&hl=en&fs=true"></embed></object>

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="id" value="VideoPlayback" /><param name="src" value="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=-1983841758046621864&hl=en&fs=true" /><embed id="VideoPlayback" type="application/x-shockwave-flash" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true" src="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=-1983841758046621864&hl=en&fs=true"></embed></object>

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="id" value="VideoPlayback" /><param name="src" value="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=-6672517410737359893&hl=en&fs=true" /><embed id="VideoPlayback" type="application/x-shockwave-flash" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true" src="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=-6672517410737359893&hl=en&fs=true"></embed></object>

John Perry Barlow talar um eðli lýðræðis á upplýsingaöld
Við fórum með John Perry Barlow og Eben Moglen út á Þingvelli í gær, 4. júlí, og tókum upp þetta myndband.

<embed id="VideoPlayback" style="width:400px;height:326px" allowFullScreen="true" src="http://video.google.com/googleplayer.swf?docid=2764008898452438504&hl=en&fs=true" type="application/x-shockwave-flash"> </embed>

Ráðstefnan byrjar eftir þrjá tíma, og við hlökkum til að sjá alla þar.

Opið er fyrir skráningar á ráðstefnuna
Ráðstefna um stafrænt frelsi verður haldin 5. júlí 2008 í Grand Hótel Reykjavík, eins og áður hefur komið fram. Frítt er inn á ráðstefnuna en við viljum gjarnan að fólk skrái sig svo að við getum áætlað fjöldann vel.

Nú höfum við opnað fyrir skráningar, og þú getur skráð þig hér.

Dagskráin birtist innan skamms.