Félag um stafrænt frelsi á Íslandi » hhg

Ráðstefna um stafrænt frelsi 2008
Þann 5. júlí næstkomandi stendur FSFÍ fyrir ráðstefnu um stafrænt frelsi í Gullteigssal á Grand Hótel Reykjavík. Úrvals fyrirlesarar koma hér saman á þennan einstaka viðburð sem er ætlað að vekja íslendinga til umhugsunar um eðli frelsis á upplýsingaöld. Aðalfyrirlesararnir eru Eben Moglen frá Software Freedom Law Center og John Perry Barlow frá Electronic Frontier Foundation. Auk þeirra verða aðrir innlendir og erlendir fyrirlesara með erindi sem snerta stafrænt frelsi í íslensku þjóðlífi og önnur málefni sem varða stafrænt frelsi á alþjóðavettvangi og samstarfi.

Dagskrá

12:00 Setning

Tryggvi Björgvinsson, formaður FSFÍ

12:30 Freedom to Think: The Role of Free Software in the Growth of the Human Mind

Eben Moglen, Software Freedom Law Center

14:00 The right to know

John Perry Barlow, Electronic Frontier Foundation

15:30 Kaffihlé

16:00 Opið umhverfi rafrænna skilríkja á Íslandi

Haraldur Agnar Bjarnason, Fjármálaráðuneytið

16:20 Ending Poverty with Open Hardware

Vinay Gupta og Lindsey Darby, Hexayurt inc.

16:40 Frjáls menning í skólastofunni

Salvör Gissurardóttir, Kennaraháskóli Íslands

17:00 Peering into the Future: Collaborative Models for Distributed Manufacturing

Andy McDonald, Center for Advanced Textiles, University of Glasgow

17:20 Íslensk wiki verkefni

Ævar Arnfjörð Bjarmason, Íslenski Wikimediahópurinn

17:40 Persónuvernd í opinni rafrænni stjórnsýslu

Haukur Arnþórsson, Háskóli Íslands

18:00 Ráðstefnuslit

Dagskrá ráðstefnu um stafrænt frelsi 2008 á pdf formi.

Um fyrirlesarana

Eben Moglen – Freedom to Think: The Role of Free Software in the Growth of the Human Mind

Eben Moglen er prófessor í lögum og sögu laga við Columbia háskólann í Bandaríkjunum og er stofnandi, aðalmálflutningsmaður og formaður Software Freedom Law Center sem er ætlað að vernda og styðja við frjálsan og opinn hugbúnað. Moglen hefur unnið mjög náið með Free Software Foundation og sat í stjórn stofnunarinnar frá árinu 2000 til ársins 2007.

Moglen er einn af lykilmönnunum í viðhaldi frjálsa hugbúnaðarleyfisins GNU General Public License. Listi námskeiða sem hann kennir eða hefur kennt inniheldur meðal annarra námskeiða lög í nútímasamfélagi, lög í netsamfélagi, saga enskra laga og saga bandarískra laga.

Moglen var einn af lögfræðingunum í vörn Philip Zimmermann varðandi útflutning á tölvuöryggi og árið 2003 hlaut hann Frumkvöðlaverðlaun Electronic Frontier Foundation. Moglen er vinsæll fyrirlesari um frjálsan hugbúnað og tengd lagaleg málefni og hefur haldið ræður um allan heim.

John Perry Barlow – The Right to Know

John Perry Barlow er þekktur baráttumaður frelsis í netheimum. Árið 1990 stofnaði hann ásamt Mitch Kapor og John Gilmore samtökin Electronic Frontier Foundation (EFF) og situr í stjórn samtakanna í dag. EFF eru þekkt alþjóðleg samtök sem berjast fyrir málfrelsi í netheimum á lagalegum grundvelli.

Barlow hefur skrifað fjölda greina sem birtar hafa verið af ýmsum ritum eins og til dæmis Communications of the ACM, Mondo 2000, New York Times og Time. Hann hefur verið driffjöður Wired tímaritsins frá stofnun þess. Grein hans “Hagfræði hugmyndanna” (e. The Economy of Ideas) er kennd í mörgum lagaskólum og “Sjálfstæðisyfirlýsing netheima” sem hann setti saman er birt á fjölda vefsíðna.

Árið 1999 valdi FutureBanker tímaritið Barlow sem “einn af 25 áhrifamestu aðilunum í fjármálaþjónustu.” Hann talar alþjóðlega fyrir ýmsum málefnum, sérstaklega stafrænni hagfræði, í ræðu, riti og ráðgjöf.

Haraldur Agnar Bjarnason – Opið umhverfi rafrænna skilríkja á Íslandi

Haraldur Agnar Bjarnason er sérfræðingur hjá fjármálaráðuneytinu og vinnur meðal annars að ýmsum málum er varða stefnumótun og notkun upplýsingatækni hjá ríkinu. Hann hefur tekið þátt í og starfar í ýmsum nefndum og verkefnahópum innan ríkisins sem fjalla um málefni tengd upplýsingatækni. Meðal annars situr Haraldur Agnar í verkefnastjórn um rafræna stjórnsýslu og í stjórn fagráðs um upplýsingatækni (FUT) sem er undir staðlaráði.

Haraldur Agnar vann áður hjá fjársýslu ríkisins þar sem hann var til að mynda innleiðingarstjóri nýrra fjárhags- og mannauðskerfa ríkisins. Þar á undan var hann fjármálastjóri fyrirtækisins InOrbit Entertainment sem vann að gerð tölvuleikja og starfaði í San Fransisco. Haraldur var einnig einn af stofnendum Miðheima (centrum.is) sem var eitt fyrsta internetþjónustufyrirtækið á Íslandi sem starfaði á almennum markaði.

Ásamt starfi sínu sem sérfræðingur hjá Fjármálaráðuneytinu er Haraldur Agnar að vinna að MS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. BS ritgerð hans fjallaði um opinn hugbúnað og hét einfaldlega “OPEN SOURCE SOFTWARE”.

Haukur Arnþórsson – Persónuvernd í opinni rafrænni stjórnsýslu

Haukur Arnþórsson hefur starfað við upplýsingatækni í tæpa þrjá áratugi. Fyrst hjá Reiknistofnun Háskólans, en árið 1989 tók hann við starfi forstöðumanns upplýsinga- og tölvumála hjá skrifstofu Alþingis og gegndi því til 2004. Hann lýkur á árinu doktorsnámi í rafrænni stjórnsýslu

við HÍ og hefur hann á námstímanum einnig unnið í Evrópskum rannsóknarverkefnum á sviði rafrænnar stjórnsýslu og rafræns lýðræðis. Haukur er frumkvöðull við opnun opinberra gagna á Íslandi, en undir hans stjórn opnaði Alþingi vef sinn í júlí 1994 fyrst evrópskra þjóðþinga og birtir vefur Alþingis bæði upplýsingar um þingmál, þingræður og lagasafn Íslands.

Ævar Arnfjörð Bjarmason

Ævar Arnfjörð Bjarmason er einn af höfundum Mediawiki hugbúnaðarins og öðrum frjálsum hugbúnaðarverkefnum. Mediawiki hugbúnaðurinn er notaður í keyrslu á mörgum wiki-vefum, þó svo að upprunalega og þekktasta notkun hugbúnaðarins sé Wikipedia alfræðiritinu. Ævar hefur unnið að efni fyrir bæði ensku og íslensku útgáfu Wikipedia og er jafnframt einn af stjórnendum íslenska Wikipedia (í raun umsjónarmaður sem sér til þess að allt gangi vel fyrir sig). Ævar er vel þekktur í Wikimedia-samfélaginu sem vinnur ekki einungis að Wikipedia heldur einnig öðrum verkefnum eins og Wikiorðabók, Wikiheimildum svo að nokkur dæmi séu nefnd.

Ævar hefur einnig unnið talsvert að Perl túlkinum en Perl er mjög vinsælt frjálst forritunarmál, sérstaklega þekkt fyrir öfluga textavinnslu. Ævar hélt fyrirlestur á YAPC::EU 2007 ráðstefnunni en YAPC (Yet Another Perl Conference) er vel þekkt ráðstefnuröð í samfélaginu sem myndast hefur í kringum Perl forritunarmálið og er styrkt og eflt af The Perl Foundation. YAPC:EU er, eins og nafnið gefur til kynna, evrópski armur YAPC.

Salvör Gissurardóttir

Salvör Gissurardóttir er lektor við Kennaraháskóla Íslands og landsfrægur bloggari. Hún er leiðandi í stafrænni miðlun kennsluefnis á Íslandi. Salvör hefur lengi verið áhugasöm um frjálsan hugbúnað, þá sérstaklega notkun hans í kennslu. Salvör er til að mynda ein af stofnendum Ísfoss sem eru áhugamannasamtök um opinn hugbúnað í skólastarfi og hún situr í stjórn þess félags. Salvör hefur einnig verið dugleg að senda inn efni á Wikipedia og jafnframt notað wiki tæknina í kennslu og skólastarfi.

Vinay Gupta

Vinay Gupta er skosk-indverskur tölvunarfræðingur sem býr á Íslandi og vinnur við þróun á tækni fyrir flóttamannabúðir, þá einna helst Hexayurt skýlið. Hann starfaði áður hjá Rocky Mountain Institute og ritstýrði bókinni Winning the Oil Endgame.

Lindsey Darby

Lindsey Darby er umhverfisverkfræðingur sem vinnur að þróun frjálsra lausna fyrir þróunarlönd, þá aðallega hvað snýr að fátækt og sjálfbærni.

Andy McDonald

Andy McDonald er doktorsnemi við Center for Advanced Textiles í Glasgow háskóla. Hann hefur unnið að þróun hugmynda um innleiðingu frjálsra aðferða og dreifða samvinnu inn í viðskiptaáætlanir.