Þakkir fyrir vel heppnaða ráðstefnu!
December 2nd, 2009 steinnes : flokkur : FréttirStjórn FSFÍ er í skýjunum eftir frábæra ráðstefnu í gær og vill þakka eftirfarandi aðilum fyrir aðstoð og liðlegheit í tengslum við nýafstaðna ráðstefnu um stafrænt frelsi 2009 (Reykjavík Digital Freedoms Conference 2009):
- Allir fyrirlesararnir sem komu fram á ráðstefnunni
- Háskólinn í Reykjavík fyrir húsnæði og samvinnu
- Prentlausnir ehf. fyrir frábæra þjónustu og afslátt
- Merkt ehf. fyrir frábæra þjónustu og afslátt af bolum
- Tölvulistinn ehf.fyrir stuðning við dreifingu frjálsrar tónlistar á geisladiskum
- Frjálsa samfélagið á Íslandi fyrir alla hjálpina
Að auki viljum við þakka öllum ráðstefnugestum fyrir komuna og bjóða nýja meðlimi velkomna í félagið. Þið megið búast við fréttum gegnum póstfangið fsfi@fsfi.is og öllum meðlimum er auðvitað velkomið að nýta póstlistann sem vettvang til umræðu um málefni stafræns frelsis.
Fyrir þá sem notfærðu sér bolagerðina okkar, þá viljum við minna fólk á að “baka” bolinn við 150 gráðu hita í u.þ.b. 3 mínútur á blæstri, svo málningin haldist í þvotti.
