Vilt þú hjálpa til við ráðstefnu FSFÍ 1. desember næstkomandi?
November 11th, 2009 tryggvib : flokkur : Fjáröflun, Ráðstefna um stafrænt frelsiKæru meðlimir!
Nú nálgast óðfluga ráðstefna FSFÍ fyrir árið 2009. Stjórnin hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur við að setja saman öfluga dagskrá sem á upp á pallborðið hjá Íslendingum öllum við þær erfiðu aðstæður sem við stríðum nú við.
Aðalfyrirlesarar, eins og kemur fram á vefsíðu FSFÍ verða þeir Eric F. Saltzman, einn stofnenda Creative Commons, og Daniel Schmitt, talsmaður WikiLeaks.
Okkur vantar fólk sem hefur tíma og áhuga á að taka þátt í að gera atburðinn að veruleika!
Ef þú hefur einhvern af eftirfarandi hæfileikum:
- Myndvinnsla (klippingar og upptökur)
- Þýðingar (t.d. kynningarefni úr ensku)
- Hönnun
- Orðfærni (skrifa kynningarefni)
- Fjáröflun (útvega styrki og stuðning)
- Óbilandi áhuga
Endilega verið í sambandi við stjorn@fsfi.is
Einnig viljum við vekja athygli á því að við hvikum ekki frá því að ráðstefnur félagsins séu lausar við aðgangseyri og öllum opnar, en þó fylgir svona atburðum alltaf viss kostnaður og FSFÍ er rekið á sjálfboðavinnu og því ávallt frekar félítið. Við viljum því biðja alla sem eiga kannski frekar fé en tíma aflögu, að íhuga að leggja okkur lið með beinu framlagi.
Reikningur: 526-26-3638
Kennitala félagsins er: 470308-1170
Allir styrktaraðilar verða nafngreindir, ef þeir óska eftir því á styrktaraðilasíðu FSFÍ.
Með von um jákvæð viðbrögð og sköpunarvilja!
Stjórn Félags um stafrænt frelsi á Íslandi
