Saga frjáls hugbúnaðar á Íslandi
October 29th, 2009 tryggvib : flokkur : Frjáls hugbúnaður, Frjálst samfélag, GreinarUpphafið eða um það bil
Á svipuðum tíma og Richard Stallman byrjaði á GNU verkefninu, skilgreindi frjálsan hugbúnað og stofnaði Frjálsu hugbúnaðarsamtökin byrjaði jarðeðlisfræðineminn Einar Kjartansson að vinna að fyrstu útgáfu hugbúnaðar til að greina jarðskjálftabylgjur. Hugbúnaðurinn, sem hlaut nafnið Seismic Unix, lifir mjög góðu lífi í fræðiheiminum og hefur hlotið nokkur verðlaun í gegnum tíðina. Notkun og áframhaldandi þróun hugbúnaðarins er ekki háð mörgum skilmálum, eitthvað sem tíðkaðist á uppvaxtarárum upplýsingatækninnar og svipar mjög til hugmyndafræði frjáls hugbúnaðar, sem hefur verið Seismic Unix mjög til framdráttar. Síðan þá hefur Einar unnið í öðrum rannsóknarverkefnum en mikilvægast af öllu fyrir framgöngu frjáls hugbúnaðar á Íslandi hefur Einar eignast börn.
Bjarni Rúnar, elsti sonur Einars, hefur verið einn ötulasti baráttumaður frjáls hugbúnaðar á Íslandi. Bjarni Rúnar byrjaði að vinna með tölvur í kringum 10 ára aldurinn og árið 1992, þegar hann var sextán ára, setti hann forrit sem hann hafði búið til, völundarhússskaparann maze, á Netið. Maze er líklegast fyrsta forritið sem Bjarni Rúnar setti á Netið og leyfði heiminum að sjá. Bjarni Rúnar sendi maze inn á USENET þræðina alt.sources og comp.lang.c og þrátt fyrir að hann hafi ekki gefið það út undir neinu sérstöku hugbúnaðarleyfi að þá er það augljóst að hann ætlaði sér ekki að sitja einn á sköpunarverkinu. Í USENET póstinum segir Bjarni Rúnar:
,,I am not pleased with everything, feel free to modify and replace whatever needs it.
If anybody loves it to pieces mail would be welcome.. Also I would kinda like to keep copies of any major changes to the code.“
Gjafmildi Bjarna Rúnars, eins sjálfsagt og honum eflaust fannst það, átti eftir að verða til þess að nokkrum árum seinna varð Bjarni Rúnar í fararbroddi innleiðingar frjáls hugbúnaðar á Íslandi.
Vitundarvakning
Í desember árið 1995 kom út fyrsta tölublaðið af Tölvuheimi, eða PC World Ísland, íslensku tímariti um tölvur. Í gömlum tölublöðum má glögglega sjá hvernig frjáls og opinn hugbúnaður ryður sér hægt og rólega til rúms á Íslandi. Í upphafi var ekki mikið fjallað um frjálsan og opinn hugbúnað. Fyrsta tölublaðið birti dóm um Windows 95, annað tölublaðið, sem kom út í byrjun árs 1996, bar saman stýrikerfin Windows NT, Windows 95 og OS/2 Warp Connect. Upplýsingafrelsi skaut upp kollinum í fjórða tölublaði Tölvuheims. Elías Halldórsson hafði þýtt ,,Sjálfstæðisyfirlýsingu netheima“ eftir John Perry Barlow og þýðing Elíasar var birt á heilli opnu í blaðinu.
Í september sama ár, árið 1996, var svo minnst á frjálsan og opinn hugbúnað í fyrsta skiptið. Tölvuheimur tók viðtal við ungan starfsmann Margmiðlunar, Egil Rúnar Erlendsson, og birti viðtalið undir titlinum ,,Ég heiti egill & ég er tölvufíkill“. Egill Rúnar lýsir ánægju sinni að fá að vinna með frjálsan og opinn hugbúnað hjá Margmiðlun þegar hann segir: ,,Sem betur fer eru þetta almennilegar græjur sem ég er að vinna með; til dæmis þrjár Linux vélar.“ Egill Rúnar telur einnig upp nokkrar af sínum uppáhaldsvefsíðum en á meðal þeirra er vefsíða frjálsa og opna vefþjónsins Apache, http://www.apache.org/, og vefsíða frjálsu og opnu stýrikerfisdreifingarinnar RedHat, http://www.redhat.com/. Tveimur mánuðum síðar, í nóvember 1996, er viðtal tekið við kerfisstjóra Margmiðlunar, sem reynist vera Bjarni Rúnar Einarsson. Í viðtalinu er ekkert minnst á áhuga Bjarna Rúnars á frjálsum hugbúnaði en það var um þetta leyti, það er skömmu eftir að Bjarni Rúnar hóf störf hjá Margmiðlun, að hann setti saman kynningarsíðu um frjálsa stýrikerfið GNU/Linux á vefsvæðinu http://www.mmedia.is/linux/. Kynningarsíðan átti eftir að vera vinsæll viðfangsstaður margra forvitinna tölvunotenda sem vildu vita meira um frjálsan og opinn hugbúnað. Bjarni Rúnar bauð einnig á þessum tíma upp á geisladisk með RedHat ásamt nokkrum viðbótum frá sjálfum sér. Þessar breytingar Bjarna Rúnars voru vísirinn að íslenskun frjáls stýrikerfis. Geisladiskurinn kostaði 500 krónur og innifalið í því verði var sendingarkostnaður hvert á land sem er.
Í desembertölublaði Tölvuheims árið 1996 birtist svo fyrsta stóra greinin um frjálsan og opinn hugbúnað þegar Pétur Björnsson, penni Tölvuheims og tölvunarfræðinemi við Háskóla Íslands, fór ítarlega í gegnum sögu frjáls og opins hugbúnaðar í greininni ,,GNU & Linux: Hugbúnaður framtíðar eða draugar fortíðar?“. Pétur segir frá Richard Stallman og Linus Torvalds en fer þó örlítið rangt með mál þegar hann segir að Frjálsu hugbúnaðarsamtökin (Free Software Foundation) hafi verið stofnuð af Stallman til að ,,hamla gegn sölu hugbúnaðar með því að stuðla að drefingu hugbúnaðar án endurgjalds.“ Pétur minnist samt sem áður á það örlítið seinna í greininni að ,,[f]orritskóði [frjáls hugbúnaðar] liggur á lausu.“ Eftir þessa grein var lítið fjallað um frjálsan hugbúnað í Tölvuheimi þangað til árið 1998 en þá átti frjáls hugbúnaður eftir að minna verulega á sig í íslensku upplýsingasamfélagi.
Opinn hugbúnaður
Árið 1998 ákvað bandaríska tölvufyrirtækið Netscape að opna aðganginn að frumþulum vafrans síns og gefa hann út undir heitinu Mozilla. Tölvuheimur hafði áður fjallað um Netscape og jafnvel lagt það til að fólk notaði frekar Netscape en Internet Explorer frá Microsoft. Samt sem áður urðu viðbrögðin ekki mikil í tölublöðum Tölvuheims fyrri hluta ársins. Í júlí/ágústtölublaðinu er talað um að GIMP bjóði Photoshop birginn í lítilli grein undir titlinum ,,Unix tólið Gimp gegn Photoshop“. Greinin tekur það ekkert sérstaklega fram að um frjálsan hugbúnað sé að ræða heldur einblínir á samanburð þessara tveggja forrita. Í septembertölublaði Tölvuheims árið 1998 er svo minnst í fyrsta skiptið á umskiptingu Netscape vafrans yfir í Mozilla þegar lítil grein birtist um tölvugarpinn Jamie Zawinski, sem hlóð Mozilla fyrstur manna upp á Netið. Greinin sem bara titilinn ,,jwz: Ofursvali yfirhakkarinn hjá Netscape“ var ekki löng og fréttunum ekki gefinn mikill gaumur.
Í október, sama ár, er birtur samanburður á stýrikerfum í greininni ,,Keppnin um gluggasætið“. Í þessum samanburði fær GNU/Linux í fyrsta skiptið að vera með og er meira að segja fyrsta stýrikerfið sem fjallað er um í dóminum, sem var í rauninni tvíþættur. Það var sagt að GNU/Linux væri ,,[ó]keypis en fráhrindandi“ en aftur á móti var líka sagt að ,,[m]argir kerfisstjórar hreinlega elska Linux.“ Í þessum sama mánuði stofnaði Bjarni Rúnar, að ósk Loga Ragnarssonar, póstlista fyrir íslenskun KDE gluggaumhverfisins á léni Bjarna Rúnars, molar.is. Íslenskun KDE átti eftir að gera margt gott og verða að minnsta kosti einum íslenskum ráðherra örlítið til skammar um það bil ári seinna.
Sama mánuð og dómurinn um GNU/Linux sem skjáborðsstýrikerfi fellur og KDE þýðingarlistinn komst í gagnið tóku þrír félagar: Tryggvi Farestveit, Theodór Ragnar Gíslason og Árni Arent Guðlaugsson, sig til og stofnuðu félagið Linux á Íslandi. Markmið Linux á Íslandi var að miðla upplýsingum og fræðsluefni. Linux á Íslandi stefndi einnig að því að vera með frjáls og opin forritunarverkefni. Mánuðinn þar á eftir, í nóvember, fór vefsíðan http://www.linux.is/ í loftið. Á Linux.is var hægt að nálgast ýmsar fréttir um GNU/Linux, flestar þýddar úr erlendum miðlum, og ræða við aðra áhugasama á spjallborði síðunnar. Í sama mánuði stóð Bjarni Rúnar í því að kynna Háskóla Íslands fyrir GNU/Linux bæði í stúdentablaðinu og á málþingi á vegum háskólans.
Í desember 1998 birtir Tölvuheimur stóra grein eftir Vilhjálm Þorsteinsson. Í greininni sem nefnist ,,Kynþokkafullur hugbúnaður…“ útskýrir Vilhjálmur hugmyndafræðina ágætlega, segir frá Linux, Apache, GNU og Sendmail og segist vera ,,algjörlega sannfærður um opin forrit.“ Til þess að fullvissa sig um að allt sé satt og rétt leitar Tölvuheimur til Bjarna Rúnars og spyr hann álits á greininni. Bjarni Rúnar segir greinina góða og bendir á nokkur smávægileg atriði sem mætti betur komast til skila.
Bjarni Rúnar útskýrir svo frjálsan hugbúnað betur fyrir lesendum Tölvuheims í næsta tölublaði, janúar/febrúartölublaðinu árið 1999. Bjarni Rúnar útskýrir hvað frjáls hugbúnaður er og af hverju frelsi er mikilvægt fyrir litla þjóð eins og Ísland. Í greininni kemur hann einnig inn á verð frjáls hugbúnaðar, mörgæsina Tux og KDE þýðingarstarfið. Í sama tölublaði segir Tölvuheimspenninn Hjálmar Snær Gíslason frá samkomu tengdri tungutækni undir titlinum ,,Tungulipurt tölvufólk“. Á einni myndinni hefur Hjálmar Snær bætt við myndtexta þannig að Mörður Árnason virðist segja ,,Svo var ég aðeins að fikta mig áfram í Linux um daginn…“ Það var orðið svalt að fikta við frjálsan hugbúnað.
Grasrótin blómstrar
Um svipað leyti og Bjarni Rúnar skrifaði greinina fyrir janúar/febrúartölublaðið gekk frjáls íslensk tölvumenning inn í nýja tíma. Félag áhugamanna um Unix, Vinix eða ,,VINIr uniX“, var stofnað svipuðum tíma, í janúar 1999. Í desember árið áður hafði Bjarni Rúnar útbúið póstlistann vinix á sama léni og KDE þýðingin, molar.is. Póstlisti Vinix varð fljótt vinsæll samkomustaður á Netinu þar sem áhugasamir netverjar skiptust á upplýsingum og tæknilegri aðstoð með frjálsan hugbúnað. Félagið Vinix fylgdi fordæmi erlendra notendahópa Linux (LUG – Linux User Groups) með því að halda fundi og uppsetningarsamkomur þar sem GNU/Linux dreifingar voru settar upp á mörgum tölvum áhugasamra eigenda. KDE þýðingarlistinn og Vinix sýndi áhugasömu tölvufólki hversu stór og virkur hópur hafði áhuga á frjálsum stýrikerfum. Vinix félaginu var aldrei stýrt af neinni stjórn heldur var það sjálfstæð framtakssemi meðlima félagsins sem dreif baráttuna áfram.
Í marstölublaði Tölvuheims árið 1999 var fjallað um það hvernig Björn Bjarnason, þáverandi menntamálaráðherra, náði að sigra erlenda hugbúnaðarrisann Microsoft og sannfæra fyrirtækið um að þýða Microsoft Windows 98 yfir á íslensku. Björn Bjarnason hafði skrifað undir samninginn í janúar og í framhaldi af því hafði KDE þýðingarhópurinn hafði sent frá sér fréttatilkynningu um þýðingu KDE. Fréttatilkynningin varð til þess að frétt birtist á vef Morgunblaðsins, http://www.mbl.is, Hrafnkell Eiríksson fór í símaviðtal í útvarpsþættinum ,,Á línunni“ á Rás 2 og Bjarni Rúnar fór í stutt viðtal í Kastljós þar sem hann ræddi um KDE, GNU/Linux og Microsoft. Í DV í mars var sagt frá Linux Expo og Linus Torvalds undir fyrirsögninni ,,Heimsyfirráð í næstu viku.“ Frjáls og opinn hugbúnaður var búinn að vekja athygli annarra innlendra fjölmiðla en Tölvuheims. Þrátt fyrir allt þetta sviðsljós og jafnvel þó svo að Bjarni Rúnar hafi tveimur mánuðum áður minnst á KDE þýðingarnar í Tölvuheimi, var ekkert minnst á KDE sjálfboðaliðastarfið í grein Tölvuheims um Microsoft-samninga menntamálaráðherra. Björn Bjarnason sagði frá málinu í ræðu við málþingsstofnun Vigdísar Finnbogadóttur 28. nóvember 2002 og nefndi þau vonbrigðisviðbrögð almennings, bæði vegna þess klúðurs sem fylgdi þýðingunni og einnig því að KDE þýðingunni hafi ekki verið gefinn gaumur. Á þessum tíma voru Íslendingar farnir að senda inn breytingar og viðbætur við frjáls hugbúnaðarverkefni. Þar á meðal höfðu Bjarni Rúnar og Hrafnkell sent breytingar í KDE verkefnið og þar af leiðandi var Ísland mun tengdara KDE en nokkurn tímann Microsoft Windows 98.
Um það bil mánuði eftir að greinin um Microsoft-samningana birtist í Tölvuheimi, eða 20. apríl 1999, var fyrsta Linux ráðstefna landsins haldin á vegum Skýrslutæknifélags Íslands. Einn af skipuleggjendum ráðstefnunnar var Bjarni Rúnar og aðalfyrirlesarar ráðstefnunar voru Bruce Perens, sem hafði tekið þátt í mótun hugtaksins opinn hugbúnaður árið áður og Alan Cox, einn virkasti forritari Linux-kjarnans. Linus Torvalds hafði meðal annarra verið boðið á ráðstefnuna en hann komst ekki vegna anna eða svo sagði hann Þórarni R. Einarssyni þegar þeir ræddu um ráðstefnuna á Hartsfield-Jackson flugvellinum í Atlanta.
Áhrifamikið áhugamál
Sumarið 1999 urðu ritstjóraskipti hjá Tölvuheimi. Stefán Hrafn Hagalín lét af störfum sem ritstjóri og Pétur Björnsson, sem skrifaði fyrstu stóru greinina um frjálsan hugbúnað í Tölvuheimi, tók við ritstjórastólnum. Fyrsta tölublaðið undir stjórn þessa nýja ritstjóra Tölvuheims var júlí/ágúst-tölublaðið það ár. Þetta tölublað var hylling til frjálsa og opna hugbúnaðarheimsins því megininntak blaðsins var frjáls og opinn hugbúnaður. Forsíðumyndin sem var hönnuð af Einari Þór Einarssyni sýndi teiknaða mynd af Linus Torvalds og mörgæsum (kaldhæðnislega var forsíðan unnin í séreignarforritunum Photoshop 5.0 og QuarkXPress 4.01). Ritstjórapistillinn kallaðist ,,Opinn kóði“ og tölublaðið innihélt stóra grein um Linux, auk 4 blaðsíðna viðtals við Linus Torvalds. Í sama tölublaði var kynnt væntanleg kennslubók í ritröð útgáfufyrirtækis Tölvuheims um notkun Linux: ,,Linux – á eigin spýtur“.
Kennslubókin kom út um mánaðamótin nóvember/desember 1999. Bókinni fylgdi geisladiskur með GNU/Linux dreifingunni RedHat sem lesendur gátu sett upp á tölvunni sinni. Svipaður diskur með RedHat 6.1 fylgdi Tölvuheimi í apríltölublaðinu árið 2000. Aðilarnir á bak við Linux.is höfðu stofnað fyrirtækið Firmanet í ágúst 1999 til að bjóða upp á þjónustu við Linux og Firmanet var umboðsaðili RedHat á Íslandi. Það var samt fyrirtæki Opin kerfi sem gaf lesendum Tölvuheims stýrikerfið en Opin kerfi hafði boðið upp á stuðning við GNU/Linux stýrikerfi frá árinu 1996 og formlegt samstarf fyrirtækisins við Red Hat hófst þetta ár. Richard Allen, starfsmaður Opinna kerfa, hafði meðal annars undirbúið námskeið um GNU/Linux hjá Opnum kerfum. Það olli örlitlum ruglingi að Opin kerfi dreifðu diskunum þó svo að Firmanet væri umboðsaðili. Það voru samt starfsmenn Opinna kerfa sem uppskáru mörg símtöl vegna lesenda sem ákváðu að prófa diskinn sem fylgdi með Tölvuheimi en höfðu lent í vandræðum. Tölvuheimur birti strax í næsta tölublaði, í maí 2001, ítarlega grein um uppsetningu RedHat til þess að hjálpa ráðvilltum lesendum að setja upp GNU/Linux. RedHat 6.2 fylgdi með októbertölublaðinu sama ár og RedHat 7 fylgdi júnítölublaðinu árið 2001. Frjáls og opinn hugbúnaður, þá sérstaklega GNU/Linux, varð tíður gestur á síðum Tölvuheims alveg þar til prentaða útgáfa blaðsins var lögð niður árið 2005. Frjáls og opinn hugbúnaður var við þann tímapunkt búinn að festa sig tryggilega í sessi í íslenskum upplýsingatækniiðnaði.
Á meðan Tölvuheimur dreifði diskum með Red Hat til lesenda blaðsins voru íslenskir áhugamenn í óða önn að koma á fót innlendum vefsvæðum tengdum frjálsum hugbúnaði. Í mars árið 2000 kom Kristinn E. Arnarsson, ásamt öðrum, vefsvæðinu http://www.tux.is/ í gagnið. Tux.is starfaði aðallega sem spegill fyrir ýmsan frjálsan hugbúnað og leiðbeiningar um notkun frjáls hugbúnaðar. Vinsæla vefsvæðið Hugi.is sem sinnti áhugamálum landans opnaði í nóvember fyrir áhugamálið Linux á slóðinni http://www.hugi.is/linux/ undir stjórn Jóhannesar Reykdal.
Í marsmánuði 2001 voru haldnar tvær Linux ráðstefnur. Sú fyrri, haldin 15. mars, var önnur Linux ráðstefna Skýrslutæknifélags Íslands. Aðalfyrirlesarar Linux ráðstefnu Skýrslutæknifélagsins, sem var haldin í Salnum í Kópavogi, voru Eric S. Raymond, höfundur The Cathedral and the Bazaar, og Alan Cox sem kom í annað sinn. Nýherji hélt svo ráðstefnu um Linux í samstarfi við IBM, 12 dögum seinna, eða 27. mars, á Hótel Sögu. Á ráðstefnu Nýherja og IBM fræddi Oluf Jørgensen frá IBM Nordic ráðstefnugesti um það hvernig IBM nýtti sér Linux í starfsemi sinni og í vörum sínum.
Nýjar hreyfingar
Um þetta leyti hafði dregið svo mikið úr fundarstarfsemi og uppsetningarveislum Vinix að starfsemi félagsins fór að mestu leyti fram á póstlistanum. Það var svo í septembermánuði 2003, nánar tiltekið þann 18. september, að Hallgrímur Heiðar Gunnarsson auglýsti stofnun notendahóps GNU/Linux í Reykjavík, RGLUG (Reykjavík GNU/Linux User Group) sem hann og Flóki Ásgeirsson settu á laggirnar með hjálp annarra. Póstlisti hafði verið stofnaður fyrir RGLUG um það bil tveimur vikum áður, eða 3. september, en listinn hlaut töluverða gagnrýni meðal Vinix-meðlima. Gagnrýnina mátti rekja til þess að Vinix-meðlimir höfðu áhyggjur af því að frjálsa samfélagið á Íslandi myndi tvístrast með tilkomu RGLUG og Bjarni Rúnar benti RGLUG mönnum á að Vinix hafði upphaflega verið hugsað sem notendahópur Linux á Íslandi. Það var rætt um að sameina póstlista Vinix og RGLUG en af því varð ekki. Vinix-meðlimir gerðust einnig meðlimir í RGLUG sem fljótlega náði töluverðum vinsældum og jók áhuga landsmanna á frjálsum hugbúnaði.
Til að byrja með voru fundir haldnir um það bil mánaðarlega en fljótlega dróst verulega úr þeim og á endanum varð RGLUG keimlíkt Vinix, það er starfsemi RGLUG fór að mestu leyti fram á póstlista félagsins. Stuttu eftir að RGLUG var stofnað, eða í októbermánuði 2003, fékk RGLUG eldskírn sem olli töluverðu fjarðafoki. Háskólinn í Reykjavík vann að rannsóknarverkefninu Pronto sem breytti Linux kjarnanum og gaf breytingarnar út en krafðist þess að sérstakir skilmálar væru samþykktir áður en hægt væri að ná í Pronto-breytingarnar. Freyr Gunnar Ólafsson skrifaði harðorða grein um nálgun Pronto-verkefnisins væri mögulegt brot á GPL leyfi Linux kjarnans og meðlimir RGLUG voru almennt á sömu skoðun. Gísli Hjálmtýsson, sem stjórnaði Pronto verkefninu, reyndi að réttlæta nálgun Pronto rannsóknarhópsins með því að segja RGLUG mönnum að lögfræðingar Háskólans í Reykjavík höfðu farið yfir málið og talið þetta vera leyfilegt, auk þess sem að hann benti á að GPL leyfið hafði ekki fengið neina reynslu í dómsmálum. Ummæli Gísla fóru mjög fyrir brjóstið á RGLUG-meðlimum en á endanum var ákveðið að fara rólegar í málið og reyna að leiðrétta misskilning Pronto-hópsins. Á endanum fjaraði málið út en misskilningurinn sýndi samt sem áður fram á tvennt: Kynning á frjálsum hugbúnaði, frjálsum leyfum og hugmyndafræðinni sem liggur að baki var brýn á Íslandi. Þar að auki var mjög nauðsynlegt fyrir frjálsa samfélagið á Íslandi að geta útvegað sér lögfræðilegs álits og aflað sér orðspors á Íslandi sem alvöru hreyfingar. Skref í þá átt var aftur á móti ekki tekið fyrr en tæpum fimm árum seinna eða árið 2008. Í millitíðinni héldu RGLUG-meðlimir áfram baráttu sinni fyrir frjálsum hugbúnaði og frjálsa samfélagið á Íslandi hélt áfram að dafna.
Þann 29. október 2003 setti Ólafur Jens Sigurðarsson á laggirnar áhugamannahóp um frjálsa ritvinnsluhugbúnaðinn LaTeX. Hópurinn sem hlaut nafnið ÍsTeX gaf út fréttabréfið SamanTeXt og var frekar virkur til að byrja með þó svo að með tímanum hafi starfsemi hans dalað niður í einstaka spurningar á póstlista hópsins. Árið 2004 stofnuðu Steinn Eldjárn Sigurðarson, bróðir hans Bergur Eldjárn Sigurðarson og Paul Richardson fyrirtækið ODG (Open Development Group) sem hafði það að markmiði að vinna eingöngu með frjálsan og opinn hugbúnað. Starfsemi ODG snerist að mestu leyti að þjónustu í kringum frjálsa kennsluhugbúnaðinn Moodle sem íslenskir skólar höfðu áhuga á en starfsemin lagðist svo hægt og rólega niður með tímann, aðallega vegna lítils áhuga mögulegra viðskiptavina á þessum tíma.
Opinber áhugi
Í desember 2004 fóru nokkrir RGLUG-meðlimir á fund með menntamálaráðuneytinu til að kynna ráðuneytinu fyrir frjálsum og opnum hugbúnaði. Á fundinum dreifði Bjarni Rúnar geisladiskum með Knoppix GNU/Linux dreifingunni til viðstaddra sem ræddu ýmis málefni tengd frjálsum og opnum hugbúnaði, meðal annars hvort kalla ætti hugbúnaðinn frjálsan hugbúnað. Að loknum fundi hafði menntamálaráðuneytið öðlast áhuga á frjálsum hugbúnaði sem leiddi til þess að hægt var að leita til ráðuneytisins til að fjármagna að einhverjum hluta komu Richard Stallman, upphafsmanns frjáls hugbúnaðar, til Íslands.
Það var því fyrir tilstuðlan menntamálaráðuneytisins og fjárframlaga frá meðlimum RGLUG að það tókst að fá Stallman til landsins í janúar 2005. Freyr Gunnar sá að mestu leyti um skipulagninguna en naut aðstoðar Steins Eldjárns og Hallgríms Heiðars ásamt annarra liðlegra einstaklinga. Stallman hélt vel sótta fyrirlestra í Kennaraháskólanum tvo daga í röð. Sá fyrri fjallaði um höfundarétt og samfélagið en sá seinni um hættuna sem fylgir einkaleyfum á hugbúnaði. Fimm mánuðum síðar, í maí, spurði Nýherji hvort Linux sé framtíðin á sinni annarri ráðstefnu í samstarfi við IBM. Um 90 manns sóttu ráðstefnu Nýherja sem er til marks um mikinn áhuga Íslendinga á frjálsum og opnum hugbúnaði á þessum tíma.
Árið 2007 lögðust íslensk stjórnvöld í vinnu við að marka stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað. Upphaf þess verkefnis má rekja til ársins 2004 þegar Evrópusambandið gaf út skjal um samevrópska, rafræna stjórnsýslu: ,,European Interoperability Framework for pan-European eGovernment Services“, skjali sem mælir með notkun opins hugbúnaðar og opinna staðla. Íslensk stjórnvöld gengu mjög langt í mótun stefnunnar sem er keimlík stefnu breskra stjórnvalda en samt sérstök að því leyti að sérstaklega er talað um það að íslenskar menntastofnanir ættu að gefa nemendum kost á því að kynna sér frjálsan hugbúnað til jafns við séreignarhugbúnað. Í framhaldi af því hóf Reiknistofnun Háskóla Íslands að dreifa ókeypis eintökum af frjálsa skrifstofuvöndlinum OpenOffice.org á geisladiskum til þeirra sem höfðu áhuga.
Stefna stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað kom út 11. mars 2008 við mikinn fögnuð frjálsa samfélagsins á Íslandi. Um svipað leyti tók frjálsa samfélagið nýtt skref fram á við þegar Félag um stafrænt frelsi á Íslandi (FSFÍ) var stofnað. FSFÍ sækir fyrirmynd sína í margar erlendar stofnanir sem berjast fyrir frelsi og mannréttindum í stafrænum heimi, svo sem Frjálsa hugbúnaðarstofnunin (Free Software Foundation), Electronic Frontier Foundation og Creative Commons. Markmið FSFÍ er að kynna stafrænt frelsi í öllum sínum myndum og aðstoða einstaklinga, áhugamannahópa, fyrirtæki og stofnanir að auka frelsi Íslendinga. Með tilkomu FSFÍ hafði frjálsa samfélagið loksins möguleika á því lagalega áliti sem hefði þurft í Pronto-málinu, aðallega vegna aukinnar innlendrar þekkingar en einnig vegna áhuga Eben Moglen á starfsemi FSFÍ og samstarfi félagsins við Moglen.
Frjáls framtíð
Eben Moglen kom til Íslands í tengslum við ráðstefnu sem FSFÍ stendur fyrir árlega, Reykjavík Digital Freedoms Conference. Það má í rauninni segja að ráðstefnan hafi orðið til vegna komu Eben Moglen til Íslands. Fyrsta ráðstefnan var vel sótt og ásamt Eben Moglen var John Perry Barlow, frá Electronic Frontier Foundation, aðalfyrirlesari. Auk þeirra kynntu bæði innlendir og erlendir fyrirlesarar ráðstefnugesti fyrir ýmsum öðrum öngum stafræns frelsis.
Í kringum ráðstefnuna hittu fyrirlesararnir ráðherra, þingmenn og annað framafólk í íslensku samfélagi. Meðal þeirra sem funduðu með fyrirlesurunum voru Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, þingkona Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs sem síðar varð menntamálaráðherra, Halla Björg Baldursdóttir og Guðbjörg Sigurðardóttir hjá upplýsingasamfélaginu á vegum forsætisráðuneytisins og forseti íslenska lýðveldisins, herra Ólafur Ragnar Grímsson. Auk þess fóru fyrirlesarar í bæði útvarps- og blaðaviðtöl á meðan þeir voru á landinu. Eben Moglen sneri aftur um það bil ári seinna og hitti mikið af sömu aðilum, meðal annars Katrínu Jakobsdóttur, þá starfandi sem menntamálaráðherra, og Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands. Moglen kynnti rök samfélagsins fyrir því að Ísland ætti að skipta yfir í frjálsan hugbúnað fyrir þessum aðilum sem og öðrum aðilum og ráðherrum. Sér til fulltingis hafði Moglem með sér teymi lögfræðinga og laganema á vegum Software Freedom Law Center til þess að styðja mál sitt og miðla reynslu, meðal annars frá Kerala-héraðinu í Indlandi.
Í marsmánuði 2009 skrifaði Smári Páll McCarthy harðorða grein í vefdagbók sína þar sem hann sagði frá orðrómi um framkomu Microsoft við íslenska endursöluaðila. Í greininni segir Smári Páll frá því að endursöluaðilar Microsoft á Íslandi tóku skellinn af ógreiddum Microsoft-leyfum fyrirtækja sem höfðu orðið gjaldþrota. Greinin komst í erlenda fjölmiðla, þar á meðal vinsælu fréttasíðuna Slashdot. Í framhaldi af þessari grein hafði Haukur Arnþórsson samband við nokkra Íslendinga sem hafa mikinn áhuga á frjálsum og opnum hugbúnaði, til dæmis Frosta Sigurjónssson, fyrrverandi forstjóra Nýherja og Guðjón Má Guðjónsson, oft kenndan við Oz. Þessir aðilar og fleiri tóku höndum saman og settu af stað verkefni um innleiðingu opins hugbúnaður á Íslandi. Hópurinn setti upp vefsíðuna http://www.opinhugbunadur.is/ til þess að halda utan um átakið og miðla erlendum fréttum um innleiðingu opins hugbúnaðar.
Mánuði seinna, í apríl 2009, gaf upplýsingasamfélagið á vegum forsætisráðuneytisins út Handbók um stafrænt frelsi. Í handbókinni, sem er aðgengileg á stafrænu formi á http://www.ut.is/Stafraent_frelsi/, er fjallað um frjálsan og opinn hugbúnað, opna staðla og frjálsa menningu. Handbókin, sem svarar mörgum spurningum sem brennur á opinberum starfsmönnum, var gefin út undir frjálsu leyfi og innihald bókarinnar hefur til dæmis ratað á vefsvæði átakshópsins um innleiðingu opins hugbúnaðar.
Á árunum 2008 til 2009 hófu opinberar stofnanir að skipta yfir í frjálsan og opinn hugbúnað. Ríkisskattstjóri framkvæmdi samanburð á frjálsa og opna skrifstofuvöndlinum OpenOffice.org og séreignarskrifstofuvöndlinum Microsoft Office. Verkmenntaskólinn á Akureyri skipti stórum hluta tölvustofa í skólanum yfir í frjálsa og opna stýrikerfið Ubuntu og kennarar við skólann hafa útbúið kennsluefni í OpenOffice.org skrifstofuvöndlinum. Í framhaldi af því verkefni hefur þýðing OpenOffice.org yfir á íslensku hafist og póstlisti settur af stað. Sveinn í Felli fer fyrir verkefninu og hefur náð undraverðum árangri á stuttum tíma. Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarbær hafa hafið innleiðingu frjáls og opins hugbúnaðar. Þjóðleikhúsið skipti yfir í frjálsan og opinn hugbúnað og Landspítalinn Háskólasjúkrahús hefur ákveðið að skipta yfir í eins mikinn frjálsan og opinn hugbúnað og kostur er. Nokkur fyrirtæki hafa sprottið upp sem byggja á notkun og þjónustu í kringum frjálsan og opinn hugbúnað og menntamálaráðuneytið hefur sagt frá samstarfi sínu við FSFÍ um að setja upp vettvang fyrir samstarf íslenskra skóla með notkun og þróun frjáls hugbúnaðar.
Skriðþungi frjáls hugbúnaðar á Íslandi hefur aldrei verið jafn mikill. Það er ljóst að framtíð frjáls hugbúnaðar á Íslandi er björt. Framtíð Íslands er frjáls.

7 Responses to “Saga frjáls hugbúnaðar á Íslandi”
By Bjarni on Nov 19, 2009
Lööööööng grein en áhugaverð. Hvernig væri að birta lista yfir þennan frjálsa búnað og senda á facebook eða einhvern útbreiddan vef. Það yrði svo sannarlega vel þegið af flestum.
Takk fyrir mig.
By Haukur Nikulásson on Nov 19, 2009
Smá leiðrétting fyrir ykkur:
“Tölvublaðið” undir ritstjórn Helga Arnar Viggóssónar er fyrsta íslenska tölvutímaritið og kom út árið 1982. Ekki veit ég hversu mörg tölublöð komu út en þarna er allavega fyrsta tímaritið um tölvur á ferðinni. Áður hafði fréttabréf Skýrslutæknisins verið í umferð hugsanlega í einhver ár.
By tryggvib on Nov 19, 2009
Þakka þér kærlega fyrir Haukur. Ég lagfæri greinina þannig að hún segi rétt og satt frá öllu. Fleiri athugasemdir eru vel þegnar.
Bjarni, hvaða frjálsa hugbúnað myndir þú vilja að við birtum í lista? Það er svo gríðarlega mikið af frjálsum hugbúnaði til að við gætum aldrei birt allt. Aðilar geta samt auðvitað leitað til FSFÍ varðandi hjálp.
By Ólafur Jens Sigurðsson on Nov 19, 2009
Flott samantekt, en smá leiðrétting. Það var nú meira hann Árni Magnússon (líffræðingur hjá Hafró núna) sem stofnaði ÍsTeX, ég var meira í stofnun Vinix (nafnið er komið frá honum Gísla vini mínum).
By Jóhann Gunnarsson on Nov 30, 2009
Í tilefni af athugasemd Hauks Nikulássonar hér að ofan datt mér í hug að bæta aðeins við leiðréttingu hans. Tímaritið Tölvumál, sem Skýrslutæknifélag Íslands gefur út, hefur komið út reglulega frá 1976, helgað upplýsingatækni í víðum skilningi auk þess að vera fréttabréf um málefni félagsins. Efni Tölvumála er aðgengilegt á vefnum timarit.is
By Árni Arent Guðlaugsson on Dec 7, 2009
Skemmtileg lesning.
Vantar kannski smá kafla þarna um Linux á Íslandi. Við félagarnir stóðum að allskonar samkomum, kynningarstarfi o.fl. Kannski muna einhverjir eftir “uppsetningar partýjum”, en þar komu að margir sjálfboðaliðar, og sennilega komu hátt í 100-200 manns með tölvur sínar til að láta setja Linux á.
Good ol times :)
By Geir Freysson on May 13, 2010
Þetta var áhugaverð og skemmtileg grein.