Software Freedom Day 2009
September 18th, 2009 steinnes : flokkur : FréttirÍ tilefni af Software Freedom Day 2009 (Laugardagurinn 19. September) hefur FSFÍ skipulagt samkomu. Við höfum frátekið sal á Kaffi Zimsen, frá 18 – 22, þar sem við bjóðum öllum áhangendum og áhugamönnum um stafrænt frelsi, frjálsan hugbúnað, frjálsa menningu og (ef einhverjar) aðrar hliðar frjáls samfélags að koma og halda uppá daginn með okkur.
Til stendur að spila frjálsa tónlist, mögulega með áherslu á GirlTalk hljómsveitina, en það er einmitt hljómsveitin sem myndin Rip!: A Remix Manifesto snýst um, og því kannski sérstaklega viðeigandi hlustunarefni.
Á vefsíðu Kaffi Zimsen er að finna prýðilegt kort fyrir þá sem vita ekki hvar staðinn er að finna.
Stutt summa:
Hvað: Software Freedom Day 2009 á Íslandi
Hvar: Kaffi Zimsen
Hvenær: Laugardaginn 19. September, kl.18-22
Við hjá FSFÍ vonumst til að sjá sem flesta, enda rík ástæða til að fagna, en þó árið 2008 hafi verið gott fyrir stafrænt frelsi á Íslandi, verður 2009 líklega enn betra! :-)
