RIP!: A Remix Manifesto á RIFF
September 17th, 2009 tryggvib : flokkur : Frjálst samfélag, Fréttir, Höfundarréttur, Réttur neytandaReykjavík International Film Festival (RIFF) sýnir myndina RIP: A Remix Manifesto (eða eins og titill myndarinnar er þýddur: ‘Stolið: Manifestó rímixarans’) eftir Brett Gaylor. Myndin lofsamar það listræna og stafræna frelsi sem FSFÍ berst fyrir með umfjöllun um Girl Talk, tónlistarmanns sem nýtir sér Fair Use ákvæðin í bandarískum höfundarréttarlögum. Í dagskrárbæklingi RIFF hefst lýsing myndarinnar á:
“Hvað myndirðu gera ef uppáhaldslistamaðurinn þinn væri glæpamaður og list hans glæpurinn? Ef þú ert internet-aktívisti á borð við Brett Gaylor gerirðu bíómynd sem er ólögleg af nákvæmlega sömu ástæðum.”
Í myndinni eru einnig tekin viðtöl við Lawrence Lessig, Cory Doctorow, Gilberto Gil (fyrrverandi menningarmálaráðherra Brasilíu) og Jammie Thomas (kona sem tapaði dómsmáli gegn RIAA). Myndin hefur fengið mjög góða dóma og vann meðal annars áhorfendaverðlaunin á International Documentary Film Festival í Amsterdam í fyrra.
Myndin verður sýnd á morgun, föstudaginn 18. september klukkan 22:40 í Háskólabíói, í Iðnó 22. september klukkan 20:00 og aftur í Háskólabíói 27. september klukkan 18:00. FSFÍ hvetur meðlimi eindregið til þess að fjölmenna á sýningarnar. Dragið vini og vandamenn með í bíó og kíkið á þessa stórgóðu mynd sem er nátengd baráttumálum okkar á Íslandi.
Í anda myndarinnar er hægt að endurblanda hana á: opensourcecinema.org
Opinber síða myndarinnar er: http://www.ripremix.com en myndina er ekki hægt að sækja innan Íslands.
Við mælum einnig með því að þið kynnið ykkur tónlistarmanninn Girl Talk (Gregg Gillis) sem var innblásturinn á bak við að kvikmyndina. Þið getið nálgast plötuna hans “Feed The Animals”, sem er gefin út undir Creative Commons Attribution NonCommercial hjá útgáfufyrirtækinu Illegal Arts (í veldu-verðið-sjálf(ur) útgáfu):
http://illegal-art.net/illegal-art.net/__girl__talk___feed__the__anima.ls___/

1 Trackback(s)