Fjölmennum á RIP!: A Remix Manifesto
September 24th, 2009 tryggvib : flokkur : Frjálst samfélag, Fréttir, HöfundarrétturNæstkomandi sunnudag, 27. september, verður RIP!: A Remix Manifesto sýnd í síðasta skiptið á Reykjavík International Film Festival (RIFF). FSFÍ hefur áður hvatt meðlimi til þess að mæta á RIP!: A Remix Manifesto og ef þið hafið ekki séð myndina í kvikmyndahúsi nú þegar að þá er síðasta tækifærið á sunnudaginn. FSFÍ hefur frétt það að leikstjóri myndarinnar, Brett Gaylor, muni mæta á sýninguna og sitja fyrir svörum að sýningu lokinni.
Af þeirri ástæðu vill FSFÍ hvetja alla til að fjölmenna á lokasýningu myndarinnar. Fyllum salinn og fögnum boðskapi myndarinnar: Menning okkar þarf á stafrænu frelsi að halda. Nýtum tækifærið til að spyrja Gaylor, sem hefur gefið myndina út undir Creative Commons Attribution Share-Alike Non-Commercial leyfi, spurninga um myndina, um leyfið til að endurblanda myndina og um stafrænt frelsi almennt.
Þið megið einnig endilega kjósa í áhorfendaverðlaunakosningu RIFF og ef RIP!: A Remix Manifesto er að ykkar mati besta mynd hátíðarinnar þá auðvitað kjósið þið hana.
Síðasta sýning RIP!: A Remix Manifesto verður í Háskólabíói, sunnudaginn 27. september kl. 18:00.
ATH: Leiðréttur sýningartími
