Frjáls hugbúnaður í skólakerfinu
August 26th, 2009 tryggvib : flokkur : Frjáls hugbúnaður, FréttirÍ sérblaði um skóla og námskeið, sem fylgdi Fréttablaðinu í gær, 25. ágúst 2009, kom fram að menntamálaráðuneytið vinnur með áhugafólki um frjálsan hugbúnað á Íslandi að leiðum til þess að auka notkun frjáls hugbúnaðar í skólakerfinu. Ein af ástæðum þessa samstarfs er að menntamálaráðuneytið vill auka þekkingu og færni nemenda í upplýsingatækni. Félag um stafrænt frelsi á Íslandi tekur undir þessa röksemdarfærslu en félagið telur að aðgangur að frumþulu og leyfi til þess að breyta og kynna sér hugbúnaðinn ýti undir betri skilning á upplýsingatækni sem sé landi og þjóð til framdráttar. Til marks um skilning stjórnvalda á kostum frjáls hugbúnaðar í menntakerfinu má nefna fimmta lið Stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað sem segir að gefa þurfi nemendum tækifæri til að kynna sér frjálsan hugbúnað til jafns við séreignarhugbúnað.
Önnur ástæða þessa samstarfs menntamálaráðuneytisins og frjálsa, íslenska samfélagsins er sú að það hefur sýnt sig að talsverður sparnaður náist með notkun frjáls hugbúnaðar í skólakerfinu. Ber þar einna helst að nefna fyrirsjáanlegan sparnað Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA) en eins og kom fram í sjónvarpsfréttum Ríkisútvarpsins 11. ágúst sl. að þá telur VMA að skólinn muni spara í það minnsta 5 milljónir á hverju ári með því að skipta yfir í frjálsan og opinn hugbúnað. VMA hefur nú sett upp frjálsa stýrikerfið Ubuntu á tölvum skólans. Til fróðleiks má nefna að í fréttaumfjölluninni sem fylgdi umfjölluninni um 5 milljóna króna sparnað VMA var tekið viðtal við Kristin Breiðfjörð, formann Skólastjórafélags Íslands, segir að það sé nær útilokað að spara án þess að fækka starfsfólki. Þær lausnir sem skólastjórar leita til nú snúa að því að auka stærð bekkja, minnka námsframboð og bjóða upp á færri bekkjarferðir. FSFÍ vill nýta tækifærið til þess að benda skólastjórum á að skoða upplýsingatæknimál innan skólans og athuga hvort frjáls og opinn hugbúnaður geti sparað skólum sínum nægilegt fjármagn svo að niðurskurður komi síður niður á námi íslenskra barna.
Í frétt Fréttablaðsins og tilheyrandi fréttatilkynningu menntamálaráðuneytisins er einnig sagt frá samstarfi menntamálaráðuneytisins og Félags um stafrænt frelsi á Íslandi um að skapa miðlæga upplýsingaveitu sem auðveldar íslenskum skólum að deila reynslu sinni og styrkja hver annan. Upplýsingaveitan mun veita aðilum innan og utan skólanna sem hafa þróað sinn eigin frjálsa hugbúnað að dreifa honum með öðrum íslenskum skólum. FSFÍ leitar nú að kerfisstjórum og öðrum aðilum innan og utan skóla sem hafa útbúið sinn eigin frjálsa hugbúnað eða aðlagað frjálsan hugbúnað að starfsemi skólanna. FSFÍ hvetur þessa aðila til að hafa samband og vera með þeim fyrstu til þess að nýta sér þessa upplýsingaveitu. FSFÍ leitar einnig að innlendu frjálsu kennsluefni sem væri hægt að setja á sömu upplýsingaveitu til þess að styrkja íslenskt menntakerfi.
Fréttatilkynning menntamálaráðuneytisins: http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/dreifibref/nr/5047
Fréttablaðið þann 25. ágúst 2009: http://vefblod.visir.is/index.php?netpaper=1105
Fréttatími RÚV þann 11. ágúst 2009: http://dagskra.ruv.is/frsjonvarp/2009/08/11/
