Útvarp Saga: Viðtal við Eben Moglen og Smára McCarthy

June 19th, 2009 steinnes : flokkur : English, Frjáls hugbúnaður, Frjálst samfélag, Hlaðvarp, Kynningarefni

Þann 18. Júní voru Eben Moglen og Smári McCarthy gestir í þætti Sigurðar G. Tómassonar á Útvarpi Sögu. Í þættinum er rætt um átaksverkefni FSFÍ 2009, mikilvægi frjáls hugbúnaðar fyrir samfélagið, tilgang heimsóknar Moglen og áhrif hennar á átakið.

Áhugaverður misskilningur kom upp um þýðingu orðsins “hacker”, sérstaklega á íslensku, en þetta hugtak er oft notað fyrir “tölvuþrjóta”, en upprunalega á orðið við um hugmyndaríka einstaklinga sem splæsa saman mismunandi hlutum, tækjum eða forritum á nýjan eða jafnvel allt að listrænan hátt, og sl. ár hefur orðið fengið endurreisn æru og endurheimt uppruna sinn. Í kjölfar umræðu um þessa þýðingu orðsins, og svo um raunverulega tölvuþrjóta, yfirleitt nefndir “crackers” nú til dags, var einnig dreypt á þeirri áhugaverðu staðreynd að frjáls hugbúnaður, vegna þess hve opinn og auðrýnilegur hann er, reynist oft öruggari og hraðar bættur en lokaðir valkostir.

FSFÍ þakkar Útvarpi Sögu fyrir leyfið til endurbirtingar viðtalsins hér.

  1. 3 Responses to “Útvarp Saga: Viðtal við Eben Moglen og Smára McCarthy”

  2. By tryggvib on Jun 19, 2009

    Til fræðslu að þá hefur Tölvuorðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands þýtt “hacker” bæði sem tölvuþrjótur (sem “cracker” er betra enskt orð yfir) og einnig sem tölvugarpur (sem passar vel sem þýðing á “hacker”).

  3. By Andri O on Jun 20, 2009

    Ég fæ 403 villu á þessa .ogg skrá (er í DK)

  4. By steinnes on Jun 22, 2009

    Takk fyrir ábendinguna Andri, ég reyndar lagfærði þetta líklega ekki löngu eftir að þú reyndir að opna hana, en ég breytti réttindunum að kvöldi hins 20. :-)

    Ég biðst velvirðingar á óþægindunum, vonandi hafa ekki margir lent í 403 villunni :-)

Post a Comment

Creative Commons LicenseThis work is licensed under a Creative Commons Attribution-Share Alike 3.0 Unported License.