Eben Moglen heldur fyrirlestur í Háskóla Íslands

June 17th, 2009 tryggvib : flokkur : Frjáls hugbúnaður, Fréttir

Eben MoglenEben Moglen mun halda fyrirlestur í Háskóla Íslands um það hvernig stafrænt frelsi getur aðstoðað Ísland við að komast upp úr efnahagsvandræðunum. Fyrirlesturinn er ætlaður nemendum og prófessorum við Iðnaðar-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, rafmagns- og tölvuverkfræðideild, lagadeild, hagfræðideild og viðskiptadeild í Háskóla Íslands en fyrirlesturinn verður jafnframt opinn öllum sem hafa áhuga á að koma og hlusta á ókeypis fyrirlestur með Eben Moglen.

Fyrirlestur Moglens verður haldinn á Háskólatorgi, í stofu HT-101, milli klukkan 12 og 13 á morgun, fimmtudaginn 18. júní 2009.

Allir sem hafa áhuga eru velkomnir og FSFÍ vonast til þess að sjá sem flesta.

  1. 1 Trackback(s)

  2. Jun 19, 2009: Félag um stafrænt frelsi á Íslandi » Blog Archive » Fyrirlestur: Eben Moglen heldur fyrirlestur um mikilvægi frjáls hugbúnaðar fyrir efnahag Íslands

Post a Comment

Creative Commons LicenseThis work is licensed under a Creative Commons Attribution-Share Alike 3.0 Unported License.