Átaksverkefni FSFÍ 2009

June 11th, 2009 steinnes : flokkur : Frjáls hugbúnaður, Frjálst samfélag, Fréttir, Kynningarefni

Undanfarinn mánuð hefur viðamikil vinna átt sér stað innan FSFÍ, sem hófst með stofnun sérstaks aðgerðahóps þann 9. Maí 2009. Auk FSFÍ koma að þessum hóp fulltrúar frá fyrirtækjunum Kerfisþróun, Opnum Kerfum, Íkon og TM Software. Fleiri aðilar hafa lýst áhuga sínum á samstarfi við hópinn, og mun hann að öllum líkindum stækka á næsta fundi sínum.

Tilgangur hópsins, og þess átaks sem við höfum lagt upp með nú er sá að sannfæra almenning og stjórnvöld um kosti þess að nýta frjálsan hugbúnað í opinbera geiranum, menntakerfinu og hvar sem almannahagsmuna er að gæta. Baráttumálum FSFÍ um öryggi gagna, einstaklingsfrelsi og persónuvernd í stafrænu samhengi er best borgið í umhverfi frjáls hugbúnaðar, og hagsmunir ríkisins og vinnumarkaðar sameinast í notkun frjáls og opins hugbúnaðar á efnahagslegum forsendum.

Á hverju ári eyðir íslenska ríkið mörg hundruð milljónum í kaup á hugbúnaði. Þetta eru fjármunir sem fara að langstærstum hluta beinustu leið úr landi, og eru í raun ekki kaup, heldur leiga. Þetta eru fjármunir sem í mörgum tilfellum við gætum allt eins hent út um gluggann. Aðilar aðgerðahópsins eru sammála um að með upptöku frjáls hugbúnaðar í stað séreignahugbúnaðar er hægt að minnka kostnað til lengri tíma litið, og örva íslenskan efnahag til styttri og jafnvel lengri tíma.

Til lengri tíma litið mun kostnaður vegna hugbúnaðar minnka, þar sem frjáls hugbúnaður er öllum aðgengilegur og nothæfur að kostnaðarlausu, og eftir fyrstu skrefin þar sem innleiðing ætti sér stað: skjöl yfirfærð, starfsfólk þjálfað, tæknimenn sendir á námskeið, og svo framvegis, þá fylgir notkun hugbúnaðarins enginn kostnaður utan þess ef nauðsynlegt reyndist að kaupa inn utanaðkomandi sérfræðinga þegar breytingar/viðbætur/flóknari-uppfærslur ættu sér stað. Ekkert fast gjald árlega fyrir nýjungar sem yfirleitt eru óþarfi.

Að sjálfsögðu er notkun og rekstur frjáls hugbúnaðar ekki ókeypis, hugbúnaðurinn er ekki gæddur gervigreind, né er óþrjótandi magn sjálfboðaliða sem mun setja upp og reka hugbúnaðinn ókeypis, þó einhverjir slíkir sjálfboðaliðar fyrirfinnist vissulega og eru margir slíkir innan raða FSFÍ. Hinsvegar er grundvallar munurinn á kostnaði sem fylgir flestum séreignarhugbúnaði og frjálsum hugbúnaði sá, að í tilfelli séreignahugbúnaðar er um að ræða innflutningskostnað, en allur kostnaður í kringum frjálsan hugbúnað yrði aðeins í sniði þjónustukaupa við íslensk fyrirtæki, og eflir því efnahag landsins.

Undanfarin 10 ár eða svo hafa erlend sveitarfélög og stofnanir af ýmsu tagi tekið upp frjálsan hugbúnað með góðum árangri: minnkuðum kostnaði og jafnvel auknum afköstum, þessar aðgerðir verða sífellt algengari vegna lausafjárskorts, og þ.a.l. verður þekking og reynsla af uppsetningu og breytingum þessara kerfa sífellt verðmætari. Þetta er þekking og reynsla sem framsækin íslensk fyrirtæki á borð við þau sem gengu til liðs við FSFÍ í aðgerðahópnum geta flutt út, og lagt mikilvæg lóð á vogarskálar þjóðarbúsins.

Næstkomandi sunnudag kemur hingað til lands prófessor Eben Moglen, stjórnarformaður Software Freedom Law Center í opinbera heimsókn til stuðnings átaksverkefninu. Herra Moglen er viðtakandi hinna virtu frumkvöðlaverðlauna EFF, fyrir störf sín í þágu frelsis í rafsamfélaginu, og kemur hingað til lands til að funda með meðlimum átakshópsins, opinberum aðilum og mun veita faglega ráðgjöf í næstu skrefum hópsins og vonandi stjórnvalda.

Það er einfaldlega staðreynd að hér eru allar forsendur fyrir upptöku frjáls hugbúnaðar: efnahagslegar, hugvitslegar, pólitískar. Nú er rétti tíminn til að taka afstöðu með frelsi, við einfaldlega höfum ekki efni á helsinu lengur.

  1. 2 Responses to “Átaksverkefni FSFÍ 2009”

  2. By Andri O on Jun 12, 2009

    Gott framtak. Ég man eftir að hafa lesið Þingályktunartillögu þessa efnis (http://www.althingi.is/altext/135/s/0708.html) en ég hef ekki heyrt að þetta mál hafi þokast neitt áfram síðan þessi tillaga var flutt.

    Kannski að það væri ráð að stofna aðgerðarhóp sem gæti boðið stjórnvöldum og fyrirtækjum ókeypis (eða ódýra) ráðgjöf á þessum sviðum.

  3. By steinnes on Jun 22, 2009

    Þetta er ljómandi ábending Andri. Því miður lítur ekki út fyrir að þessi Þingsályktunartillaga hafi náð mikið lengra en að vera tillaga, en hún er engu að síður góð. Við vinnum nú að því að vinna uppúr aðgerðahópnum einhverskonar consortium fyrir faglega ráðgjöf hvað varðar innleiðingu frjáls hugbúnaðar af hálfu hins opinbera.

Post a Comment

Creative Commons LicenseThis work is licensed under a Creative Commons Attribution-Share Alike 3.0 Unported License.