Handbók um stafrænt frelsi

April 20th, 2009 tryggvib : flokkur : Frjáls hugbúnaður, Frjálst samfélag, Kynningarefni, Opnir staðlar

Ég hef undanfarið unnið að fræðsluefni um stafrænt frelsi fyrir forsætisráðuneytið. Hugmyndin að þessu fræðsluefni er að hluta til sprottin út frá stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað en það hafði komið í ljós að fólk þekkti lítið til frjáls og opins hugbúnaðar og hafði margar spurningar sem olli því að fáir fylgdu stefnunni eftir.

Fræðsluefnið var því skrifað með það í huga að svara spurningum um frjálsan og opinn hugbúnað en við það bættist svo kafli um opna staðla og loks efni um frjálsa samfélagið í heild sinni. Handbókin hefur verið gefin út á UT vefnum: http://www.ut.is/Stafraent_frelsi

Bókinni er skipt í þrjá höfuðkafla:

  • Frjáls og opinn hugbúnaður
  • Opnir staðlar
  • Frjálst samfélag

Mesta efnið snýr að frjálsum og opnum hugbúnaði, næstmest að opnum stöðlum og loks minnst að frjálsa samfélaginu. Það var eitt af markmiðunum að reyna að gera bókina eins auðskiljanlega fyrir alla og mögulegt er, sérstaklega þá sem taka ákvarðanir í opinbera geiranum.

Það var einnig ákveðið að efnið skyldi verða gefið út undir frjálsu leyfi til að leyfa samfélaginu að nýta, lagfæra og bæta við efnið svo að úr yrði góð handbók fyrir íslenskt samfélag sem gæti aðlagast breyttum aðstæðum framtíðarinnar. Fyrir valinu varð Creative Commons Attribution ShareAlike (leyfið sem líklegast tekur við af GFDL á Wikipedia). Með því að nota cc-by-sa getur úr orðið frjálst flæði upplýsinga milli verkefnis
eins og Wikibooks og Stafrænu handbókarinnar (sem sagt bókina má setja á Wikibooks og viðhalda henni þar og breytingar geta verið teknar inn í upprunalegu bókina og öfugt).

Það er reyndar í pípunum að gera þann hluta UT vefsins sem snýr að þessari handbók að kvikuvef (wiki) sem myndi leyfa enn betra og hraðvirkara viðhald bókarinnar en það kallar á svolítið róttækar breytingar á vefnum sjálfum. Það var því ákveðið að koma bókinni út sem fyrst og spá svo í kvikuvef seinna (vonandi sem fyrst).

Það væri æðislegt ef þið gætuð lesið yfir bókina, lagfært hana (ég er bara einn maður sem reyndi að þjóna sem flestum), bætt við efni (þið getið sent mér það og ég set það inn) og bara almennt gagnrýnt það sem
er gott og það sem betur má fara. Endilega nýtið bókina því hún er hugsuð fyrir íslenskt samfélag. Allir eiga að njóta góðs af bókinni. Stafrænt frelsi á sér framtíð í íslensku samfélagi.

Verði ykkur að góðu!

Post a Comment

Creative Commons LicenseThis work is licensed under a Creative Commons Attribution-Share Alike 3.0 Unported License.