Staða mála hjá FSFÍ – tilkynning til félagsmanna

February 19th, 2009 spm : flokkur : Fréttir

Sæl öllsömul!

Við í stjórn FSFÍ viljum byrja á því að þakka fyrir góðan stuðning í baráttunni síðasta árið. Þetta er ungt félag en við höfum náð langt á stuttum tíma, og það er mjög margt á döfinni eins og er.

Starfsemi félagsins var að mestu undir yfirborðinu í haust, en við hófumst aðeins handa við að leggja drög að næstu ráðstefnu félagsins og pældum aðeins út hvað meira mætti gera. Þá héldum við góðu sambandi við erlenda samstarfsaðila: Freyr Gunnar Ólafsson fór í heimsókn til Software Freedom Law Center í New York, Smári McCarthy fór til Gautaborgar á FSCONS ráðstefnuna, sem verður aftur haldin 13-15 Nóvember næstkomandi, sjá http://www.fscons.org/ (fjölmennum!), og Tryggvi Björgvinsson fór á Free Culture ráðstefnuna í San Fransisco.

Í síðasta mánuði veitti þáverandi menntamálaráðherra okkur í FSFÍ sæti í höfundaréttarráði. Þetta er mikil viðurkenning fyrir okkur, og var ákveðið að sitjandi formaður skyldi taka sæti FSFÍ í ráðinu. Höfundaréttarráð starfar á grundvelli reglugerðar 500/2008 um starfsreglur höfundaréttarnefndar og höfundaréttarráðs, en nánar má lesa um það hér: http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/500-2008

Þá er FSFÍ líka komið í tengsl við samgönguráðuneytið í tengslum við tilraunir þeirra með rafrænar kosningar árið 2010.

Og í dag hélt FSFÍ í samvinnu við Íkon halda örnámskeið á vegum Skýrslutæknifélagsins þar sem fjallað var um frjálsan hugbúnað, opna staðla, og fleira.

Nú á næstunni er margt á döfinni:

Við höfum sent inn umsókn um að halda OpenOffice.org ráðstefnuna árið 2009 (og 2010 ef 2009 gengur ekki). Kosningarnar eru núna í gangi, en Ísland er í baráttu við Lettland, Ungverjaland, Ítalíu, Egyptaland, Indland og Filippseyjar. Sjá http://marketing.openoffice.org/ooocon2009/cfl/

Eftir rétt tæpar tvær vikur mun Eben Moglen koma aftur til landsins í þeim erindagjörðum að hjálpa íslenskum stjórnmálaflokkum að móta stefnu um upptöku frjáls hugbúnaðar í ríkisapparatinu. Óformleg könnun FSFÍ bendir til þess að úr ríkissjóði séu greiddar hundraðir milljónir króna árlega fyrir hugbúnað, en hvergi virðist það vera sundurliðað frá öðrum útgjöldum í fjárbókum stofnanna. Því miður verður ekki tími til að skipuleggja formlegan fyrirlestur í tengslum við komu Moglens að þessu sinni, en mögulega verður hægt að bjóða til samsætu félagsmanna; það verður þá nánar auglýst síðar.

Til að bæta enn um betur mun Mathias Klang (http://www.digital-rights.net), verkefnisstjóri Creative Commons í Svíþjóð koma til landsins viku síðar í tengslum við doktorsritgerð Tryggva Björgvinssonar, formanns FSFÍ. Þá mun FSFÍ nýta ferð hans til að bjóða til samdrykkju á einhverju öldurhúsi bæjarins þar sem Matthias mun fara með framsögu og því næst mun fólk geta flutt stutt erindi, og kannski náum við að koma á einhverjum ögn formlegri fyrirlestri í samvinnu við HÍ. Sendið póst á stjorn@fsfi.is ef þið viljið flytja erindi á samdrykkjunni – fyrstir koma, fyrstir fá.

Við erum einnig í upphafsstigum skipulagningar á Nordic Perl ráðstefnunni árið 2010. Það hefur verið áhugi hjá Perlurum að halda það hér og við erum að kanna möguleika á að samþætta það ráðstefnu okkar það árið. Þetta mál er algjörlega á upphafsstigum samt, og mikið verk er framundan.

Tryggvi Björgvinsson hefur verið að vinna í efni um stafrænt frelsi fyrir forsætisráðuneytið sem mun koma út í síðasta lagi um miðjan mars (sem handbók um stafrænt frelsi). Handbókin tekur fyrir stafrænt frelsi en leggur mesta áherslu á frjálsan og opinn hugbúnað og opna staðla. Í handbókinni verður að finna svör við flestum spurningum sem brenna á ríkisstarfsmönnum og landsbúum varðandi þessi umfjöllunarefni. Til dæmis er fjallað um sannmæli og öflun frjáls og opins hugbúnaðar, helstu skráarsniðsstaðlana og frjálsan og opinn hugbúnað, staða frjáls og opins hugbúnaðar og opinna staðla í öðrum löndum, reynslusögur frá Íslandi, drög að samningum við hugbúnaðarframleiðendur og margt fleira. Í allt mun handbókin, sem verður sett á ut.is (vef upplýsingatæknisamfélags
ráðuneytanna), vera samansett úr rúmlega 40 umfjöllunarefnum. Fyrst um sinn verður efnið sett statískt inn á vefinn en það er verið að skoða hvort hægt sé að tengja kvikukerfi (wiki) inn í núverandi kerfi UT vefsins en það verður samt ekki sett upp fyrr en seinna ef það kemst í gagnið. Efnið mun koma út undir frjálsu leyfi að sjálfsögðu.

Svo er undirbúningur að fara í alvöru gír fljótlega fyrir næstu ráðstefnu um stafrænt frelsi á Íslandi. Það er sannarlega mikið til að ræða um, þannig að það er um að gera að gera þetta með glæsibrag. Félagið stendur sæmilega vel fjárhagslega þrátt fyrir hremmingar peningamarkaðarins, og fyrirtæki í landinu hafa sýnt því áhuga að styrkja næstu ráðstefnu. Það sem vantar er sjálfboðaliða: til að gera ráðstefnuna sem veglegasta þarf öflugt teymi til að aðstoða við kynningarmál og annað sem ber á góma. Ef þið hafið áhuga á því að taka þátt, látið okkur vita: stjorn@fsfi.is

Með kærri kveðju frá skotgröfum frelsisstríðsins,

Stjórn FSFÍ
Tryggvi Björgvinsson
Smári McCarthy
Steinn E. Sigurðarson
Hallgrímur H. Gunnarsson
Freyr Gunnar Ólafsson

Post a Comment

Creative Commons LicenseThis work is licensed under a Creative Commons Attribution-Share Alike 3.0 Unported License.