Styrktaraðilar FSFÍ

May 27th, 2008 tryggvib : flokkur : Fjáröflun

FSFÍ er fjármagnað að stærstum hluta með frjálsum framlögum fólks sem er umhugað um stafrænt frelsi. Einstaklingar sem styrkja FSFÍ falla í þrjá flokka eftir upphæðinni sem lögð er inn á bankabók FSFÍ:

  • Stuðningsmenn frelsis eru styrktaraðilar sem leggja inn allt frá 1 krónu til 4999 króna.
  • Baráttumenn frelsis eru styrktaraðilar sem leggja inn allt frá 5000 krónum til 14999 króna.
  • Frelsishetjur eru styrktaraðilar sem leggja inn 15000 krónur eða meira.

Styrktaraðilar FSFÍ birtast á sérstakri styrktaraðilasíðu á vefsvæði FSFÍ. Haldið er utan um styrktaraðilana á ársgrundvelli þannig að hægt er að vera frelsishetja árið 2008 ef fjárhagur leyfir en stuðningsmaður frelsis árið 2009 ef þess gerist þörf. Styrktaraðilar hvers árs eru skráðir í sögubækurnar og listi hvers árs er aðgengilegur á vefsíðu FSFÍ. Það er ekki þörf á því að leggja inn alla upphæðina í einu. Það má til dæmis byrja sem baráttumaður frelsis með því að leggja inn 6000 krónur en svo seinna uppfæra sig í frelsishetju með því að leggja inn 10000 krónur til viðbótar áður en árið er á enda.

Fyrirtæki, stofnanir og félög sem styrkja og styðja við FSFÍ falla undir flokkinn Frelsissveitir. Þeirra stuðningur getur verið bæði fjárhagslegur eða í formi gífurlegrar aðstoðar í hinum ýmsu verkefnum sem félagið tekur sér fyrir hendur.

Vitaskuld mun FSFÍ gæta nafnleyndar þeirra sem óska þess sérstaklega en í stað þess mun þá Nafnlaus birtast í þessum fjórum flokkum sem hægt er að teljast til. Við hvetjum þó alla til þess að nafngreina sig því FSFÍ er umhugað um að sýna þakklæti sitt til þeirra sem styðja við stafrænt frelsi.

FSFÍ er félag sem starfar með ykkar hagsmuni að leiðarljósi og aðeins með ykkar hjálp er hægt að halda starfsemi og baráttu FSFÍ fyrir stafrænu frelsi á Íslandi gangandi. Við biðjum þig því að íhuga að gerast stuðningsmann frelsis, baráttumann frelsis eða frelsishetju og fyrirtæki að gerast frelsissveitir með því einu að leggja þá upphæð sem þér finnst þægileg inn á bankareikning FSFÍ.

Reikningsnúmer FSFÍ er 526-26-3638 og kennitala félagsins er 470308-1170 eins og sjá má hér til hliðar.

Þakka þér fyrir stuðninginn.

Post a Comment

Creative Commons LicenseThis work is licensed under a Creative Commons Attribution-Share Alike 3.0 Unported License.