Fjáröflun í fullum gangi

May 25th, 2008 spm : flokkur : Fjáröflun, Ráðstefna um stafrænt frelsi

Þann 5. júlí næstkomandi mun FSFÍ standa fyrir ráðstefnu um stafrænt frelsi í Gullteigssal á Grand Hótel Reykjavík. Úrvals fyrirlesarar koma hér saman á þennan einstaka viðburð sem er ætlað að vekja íslendinga til umhugsunar um eðli frelsis á tölvuöld.

Eins og gefur að skilja kostar töluverðar fjárhæðir að skipuleggja þessa ráðstefnu. Í dag er staðan sú að okkur vantar um 460 þúsund krónur upp á til að geta haldið ráðstefnuna, sem kostar í heildina 605 þúsund krónur miðað við kostnaðaráætlun. Við í skipulagsnefnd ráðstefnunnar höfum reynt að vera sæmilega sparsamir, en allt kostar jú sitt.

Kostnaðaráætlun verður birt hér á vefsíðunni innan skams, enda eðlilegt að félag sem hefur frelsi að markmiði sínu sé með opið og aðgengilegt bókhald.

Við ætlum í komandi viku að fara í fjáröflunaraðgerðir, þá fyrst og fremst með því að leita til fyrirtækja um að gerast styrktaraðilar ráðstefnunnar. Styrkir eru vel þegnir frá öllum og við vinnum nú að því að koma upp síðu þar sem taldir verða upp allir sem hafa lagt FSFÍ lið með fjárstuðningi frá árinu 2004, þegar félagið hóf starfsemi sína í óformlegri mynd.

Til hliðar má sjá upplýsingar um bankabók og kennitölu félagsins, viljirðu leggja okkur lið.

Post a Comment

Creative Commons LicenseThis work is licensed under a Creative Commons Attribution-Share Alike 3.0 Unported License.